Búnaðarrit - 01.01.1974, Side 25
SKÝRSLA BÚNAÐARMÁLASTJÓRA
19
lækningar hér á landi og einnig sem venjulegt feróafólk.
Búnaðarfélag Islands kom þeim í kynni við’ nokkra dýra-
lækna, Tilraunastöðina á Keldum, Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins, Rannsóknarstofu Norðurlands og Bænda-
skólann að Hvanneyri. Þeir Olafur Dýrmundsson og Magn.
ús Óskarsson á Hvanneyri sýndu þessum hjónum ekki að-
eins, livað verið var að gera þar á staðnum, lieldur fóru
þeir meö þeim á nokkur býli í héraðinu og sýndu þeim
sláturhúsið í Borgarnesi. Jón Guðbrandsson, dýralæknir,
Selfossi, sýndi þeim Mjólkurbú Flóamanna og kom þeim
að Oddgeirshólum, þar sem þau fylgdust með bústörfum
allan daginn, en þar er húsfreyja á öðru húinu fædd og
uppalin í Þýzkalandi. Þessi þýzku lijón báðu Búnaðarfé-
lag Islands að þakka öllum, sem veittu þeim fyrirgreiðslu
og sýndu þeim gestrisni.
Jolm Gordon, bóndi, Pticalzean, Nigg, Tain í Rossshire,
Skotlandi, kona hans og tvö börn komu til Tslands síðast
í júlí og dvöldust bér í nokkra daga til að sjá ísland og
íslenzkan landbúnað. Leiðbeindi ég þeim með feröir og
hverja þau skyldu lieimsækja, en þau ferðuðust á eigin
bifreið. John Gordon hafði mikinn áliuga á dilkakjöts- og
nautakjötsframleiðslu, og veitti ég honum eins góðar upp-
lýsingar um þau mál bér á landi og ég gat.
Harald Karlanhad, ráðunautur lijá sláturfélagi Svía í
meðferð, sölu og neyzlu kindakjöts, dvaldist liér á landi
frá 17.—22. september ásamt konu og syni. Undirritaður
og Árni G. Pétursson í samvinnu við Búvörudeild SlS,
lögðum áætlun fyrir þau, en liann óskaði eftir að kynnast
sauðfjárrækt, sérstaklega kjötframleiðslu og öðrum slátur-
afurðum frá bóndanum á borð neytandans. Hann fór í rétt-
ir hér, t. d. Þverárrétt, til að sjá féð koma úr högum, slát-
urhús, bændabýli, kjötbúðir, kjötvinnslustöðvar og Hús-
mæðrakennaraskóla Islands. Undirritaður var með þessum
gestum á Hesti, í slálurhúsi Kaupfélags Borgfirðinga og
Þverárrétt, en Ingi Tryggvason, blaðafulltrúi landbúnað-
arins, var annars leiðsögumaður þeirra á ferðum hérlend-