Búnaðarrit - 01.01.1974, Blaðsíða 304
298
BÚNAÐARRIT
Smári á Grásíðu og Hringur sonur hans eru báðir ágæt-
lega fágaðir hrútar.
Fjallahrepur. Hrútarnir voru svipaðir að þyngd og
jafnaldrar þeirra 1969, veturgamlir ágætlega þroskaðir og
margir þeirra vel gerðir, aðrir aldursflokkar vel holdugir,
fætur sterkir og fótstaða góð. Af eldri hrútum var Róver
Braga í Grímstungu frá Grími í Klifsliaga talinn beztur,
þar næst Vopni Páls á Grímsstöðum, ættaður frá Teigi
í Vopnafirði. Refur Páls, ættaður frá Grími í Klifshaga
og Goði á Nýhóli, fæddur að Hólsseli, voru beztir af tvæ-
vctrum. Af þeim veturgömlu voru f jórir Grímstunguhrút-
ar beztir, Selur Benedikts frá Grími í Ærlækjarseli, Maó
Sigurðar Axels frá Iíolti í Þistilfirði, Þistill Braga einnig
frá Holti og Brjánn Benedikts, heimaalinn. Hnokki á
Nýhóli er læramikill og mjög vel gerður hrútur, en hefur
ekki nógu mikil mál.
ÖxarfjariHarhreppur. Sýningin var fjölsóttari en 1969,
en hrútar nokkru léttari en jafnaldrar þeirra fyrir fjór-
um árum. Á héraðssýningu voru valdir Prúður Kjarnason
263, Austara-Landi, Prúður Mergsson og Óðinn Prúðsson,
veturgamall, í Hafrafellstungu, Kjarni Mergsson frá
Hafrafellstungu og Bjarki Kjarnason, veturgamall, Aðal-
björns í Lundi, Holti Snæsson Gríms í Ærlækjarseli, ætt-
aður frá Holti í Þistilfirði og Dalur Jóns í Skógum frá
Laxárdal í Þistilfirði. Kjarni og Bjarki hlutu báðir I.
heiðursverðlaun. Bjarki var þar 7. í röð með 82.0 stig,
Kjarni 10. með 81.0 stig. Prúður í Tungu og Holti lilutu
I. verðlaun A, hinir, Prúður á Landi, Dalur og Óðinn I.
verðlaun B.
Presthólahreppur. Sýningin var fásóttari en 1969, og
veturgömlu hrútamir vom mun léttari en jafnaldrar
þeirra fyrir fjórum ámm, og röðun þeirra lakari, en
meira en helmingi fleiri veturgamlir vom sýndir að þessu
sinni, og áttu þeir eftir að taka út mikinn liaustþroska.
En fimm þeirra dæmdust þó ónothæfir.
Á liéraðssýningu vom valdir Valur á Katastöðum, ætt-