Búnaðarrit - 01.01.1974, Blaðsíða 305
HRÚTASÝNINGAR
299
aður frá Valþjófsstöðum, Snær Blæsson í Miðtúni, Máni
Blæsson í Sandvík frá Miðtúni, Eyvi á Einarsstöðum frá
Eyvindarstöðum í Vopnafirði, Skáli Púðason og Roði
Balason, veturgamall, í Leirhöfn og Kútur í Hjarðarási,
fæddur Grími í Klifshaga. Á héraðssýningu hlaut Snær I.
lieiðursverðlaun, var þar 6. í röð með 82.5 stig. Skáli, Kút-
ur og Eyvi hlutu I. verðlaun A, en Máni, Roði og Valur
I. verðlaun B.
Svalbar&shreppur. Sýningin var ágætlega sótt, sýndir
vom 67 hrútar, þar af um helmingur veturgamlir. Hrút-
arnir vora þyngri en jafnaldrar þeirra 1969, röðun þeirra
nú mun betri og heildarsvipur sýningar fágaðri. Af tvæ-
vetrum hrútum voru taldir beztir Logi Hnattarson Þór-
oddar á Ytra-Álandi, Númi Snæsson Óla og Gunnars á
Gunnarsstöðum, ættaður frá Holti, og Sópur í Laxárdal,
sonur Blika í Holti. Af þeim veturgömlu vora beztir
Haki Jakason og Svali Blæsson í Holti og Hroki Dropa-
son Gríms á Syðra-Álandi. Á héraðssýningu voru valdir
Logi Þóroddar og Hnöttur Rútsson Gunnars á Ytra-
Álandi, ættaður frá Holti, Lars Gríms og Lalli Vigfúsar
á Syðra-Álandi, Hlyni Mánason Óla og Gunnars á Gunn-
arsstööuin, ættaður frá Laxárdal og Haki í Holti. Á hér-
aðssýningu lilutu 4 hrútanna I. heiðursverðlaun. Lalli
var þar í efsta sæti með 90.0 stig og var því talinn bezti
einstaklingur sýningarinnar. Hlyni, Lars og Haki voru 3.,
4. og 5. í röð með 84.0, 83.5 og 82.5 stig.
Logi og Hnöttur hlutu I. verðlaun A.
Norður-Múlasýsla
Þar voru sýndir 436 lirútar. Þeir voru um 2 kg léttari
en jafnaldrar þeirra 1969 og röðun þeirra aðeins lakari,
en hlutfallslega fleiri veturgamlir vora nú sýndir. Fyrstu
verðlaun hlutu 204 eða 46.8% sýndra hrúta, 144 fullorðn-
ir, sem vógu 101.7 kg, og 60 veturgamlir, er vógu 83.2 kg.