Búnaðarrit - 01.01.1974, Blaðsíða 309
HRÚTASÝNINGAR
303
Álftafirði, og Ljómi, veturgamall, á Grund, sem hlutu I.
verðlaun B.
Suður-Múlasýsla
Þar voru sýndir 347 lirútar, og voru þeir lieldur þyngri
en jafnaldrar þeirra 1969, en röðun var nú lakari, enda
lilutfallslega fleiri veturgmalir sýndir. Fyrstu verðlaun
hlutu 146 eða 42.1% sýndra hrúta, 122 fullorðnir, er vógu
102.3 kg, og 24 veturgamlir, sem vógu 84.5 kg. Tveggja
vetra og eldri hrútar voru þyngstir í Skriðdal og Helgu-
staðahreppi, en léttastir í Eiðahreppi, þeir veturgömlu
voru þyngstir í Valla- og Beruneshreppi, en léttastir í
Skriðdal og Reyðarfjarðarhreppi. Um gæði hrúta í heild
má segja mjög það sama og greint var frá í Norður-
Múlasýslu, þó eru þar fleiri fjárræktarfélög starfandi en
í Súður-Múlasýslu.
SkruSdalshreppur. Sýning var fásótt, leiðinda vatns-
veður. Fullorðnir lirútar voru þyngri en jafnaldrar þeirra
1969, röðun hrúta mun betri, og þó nokkrir lágfættir og
holdgóðir, en þeir veturgömlu ekki nógu þroskamiklir. Á
héraðssýningu mættu Lokkur á Hallbjarnarstöðum, er
lilaut þar I. verðlaun A, og Óðinn á Amhólsstöðum frá
Skriðuklaustri, sem hlaut I. verðlaun B. Hvítur á Hall-
hjarnarstöðum frá Geitavík í Borgarfirði var valinn á
héraðssýningu, en Lokkur mætti í staðinn. Hörður á Mýr-
um var valinn 2. varalirútur á liéraðssýningu.
Vallahreppur. Sýning var fásóttari en 1969, fullorðnir
hriitar voru rúmu kg léttari nú, en þeir veturgömlu dá-
lítið þyngri, þó var röðun mun lakari að þessu sinni.
Hrútarnir voru misjafnir að gæðum, sumir læragóðir, en
eldri lirvitar þunnir á bak, og velurgamlir margir lítið
þroskaðir og lioldgrannir. Á héraðssýningu vom valdir
Pjakkur Sindrason á Unalæk og Flótti í Lundi, háðir
ættaðir frá Skriðuklaustri, og hlutu þeir I. verðlaun A,
og Prúður, veturgamall, í Keldhólum, er hlaut I. verð-
laun B. Hamar í Beinárgerði, ættaður frá Steinþóri á