Búnaðarrit - 01.01.1974, Blaðsíða 75
SKÝRSLUH STARFSMANNA
69
ast og vinna að rannsóknum á nautakjöti við helztu rann-
sóknarstöð í því efni þar í landi: Meat Research Inslitute í
Langford. Kom ég þangað 1. október til hálfs árs dvalar.
Kynbólanefnd. Ég var formaður nefndarinnar til þess
tíma, er ég fór utan. Sú hreyting varð á, að Hjalti Gests-
son, ráðunautur, tók aftur sæti í nefndinni í stað Magnús-
ar B. Jónssonar, sem þá var orðinn skólastjóri á Hvann-
eyri. Að ósk minni sat Magnús þó áfram fundi, þegar
liann kom því við, þar sem áform eru á döfinni um það
að hafa sem mest gagn af vélskýrsluhaldi nautgriparækt-
arinnar í samhandi við kynbótastarfsemina. Með tilliti til
þess ákvæðis í nýjum lögum um búfjárrækt, sem gildi
tóku á árinu, að ein kynbótanefnd í nautgriparækt skuli
starfa fyrir allt landið, fól stjórn Bíínaðarfélagsins Kyn-
bótanefnd félagsins að gegna þessu hlutverki til næsta
Búnáðarþings. Var fyrsti fundur nefndarinnar eftir þessa
ákvörðun lialdinn í Laugardælum, þar sem þeir ráðunaut-
arnir Sigurmundur Guðbjörnsson og Guðmundur Stef-
ánsson skýrðu frá nautahaldi á Kynbótastöðinni og til-
högun nautavals. Eftir það hefur Guðmundur einnig setið
fundi nefndarinnar, þegar því hefur verið við komið. Alls
hélt nefndin 8 fundi á þessu tímabili, þar af 1 á Nauta-
stöðinni. Hefur Diðrik Jóliannsson, framkvæmdarstjóri
stöðvarinnar, komið á flesta fundi nefndarinnar eins og
venja hefur verið. Eins og áð'ur tók nefndin ákvarðanir um
notkun einstakra nauta, mælti með kaupum á nautum og
gerði ráðstafanir lil þess, að ákveðnar kýr, sem hæfar
þóttu sem nautsmæður, væru sæddar við ákveðnum naut-
um. Ncfndin hefur látið í ljós megna óánægju með hindr-
anir þær, sem Sauðfjárveikivarnir hafa sett gegn flutningi
a nautkálfum í suinum tilvikum og takmarka alvarlega val
nautsmæðra. Að áliti nefndarinnar em hömlur þessar oft
a tíðum þarflausar. Að ósk nefndarinnar tók ég saman
ætlfærslu þeirra nauta, sem ætlað var að nota á Nauta-
stöðinni á árinu, svo og skyldleika þeirra við önnur naut,
sem stöðin hefur ált, síðan hún tók til starfa. Spjald með