Búnaðarrit - 01.01.1974, Side 104
98
BÚNAÐARRIT
þeirra: Blesi 577 6 folöld, Ási 768 3 folöld og Loki, Núpa-
koti, 2 folöld. !Ég mældi og skoðaði hross þar 12.—13.
nóvember.
AusturkotsbúiS í Sandvíkurhreppi, sem nokkrir áhuga-
samir menn úr Reykjavík eiga og reka, heimsótti ég tvisv-
ar á árinu og mældi þar ungviði, en margt er lirossa í
Austurkoti, flest keypt úr Skagafirði.
IlólabúiS. Stjómarfundur var haldinn 10. október. Ég
heimsótti búið þrisvar á árinu og mældi ungviði 11. októ-
her. 16 folöld vom sett á vetur, en ekkert keypt. Stóðhest-
ar notaðir og fjöldi afkvæma þeirra: Glaður 404 3 folöld,
Gustur 680 5 folöld, Gári 677 1 folald, Baldur 790 5 folöld
og Njáll 789 2 folöld eða alls 16 folöld. Mesta gleðiefni
var, að Kolbrnn átti loks sitt fyrsta folald, jarpa hryssu,
undan Baldri 790 frá Syðri-Brekkum. Á s.l. vetri var byrj-
að að temja afkvæmi Glaðs 404 frá Flatatungu á Hólum.
Þau voru 4 v. s.l. vor. Reynist þar um margt eins og ég
reiknaði méð, þ. e. að betri klárgangur næðist í trippin.
Skeiðlull var orðið allt of algengt, og einhæf skeiðhross
komu þó nokkur. Og ekki ætti Glaður að spilla fjörinu,
frekar að bæta það. Ein dóttirin virðist ætla að verða f jör-
há strax. Það voru 4 liryssur og 2 hestar í fyrsta hópnum,
f. 1969, undan Glað 404: Björk, Elja, Kolskör, ögn, Gust-
ur og Víðir, og 5 era fædd 1970.
Ilrossarœktarsamband tslands liélt aðalfund 2. júní í
Ilreðavatnsskála, og sat ég liann. Fundurinn gekk rösk-
lega. Var þá farið að Hvítárbakka, skoðuð tamningarstöð,
og efnileg tamningarhross voru þar og töluvert af hryss-
um og stóðhestum. Einnig voru yngri stóðhestar sam-
bandsins þar til sýnis. Þá var ekið að Hesti og þegnar
veitingar í hoði Hrossaræktarsambands Vesturlands. Á
Hesti vom skoðuð mörg unghross í tamningu, og 10 grað-
hestar stóðu við stall og gerðust æði aðsópsmiklir, er leidd-
ir vom út allir í einu. Söng þar hver með sínu nefi og var
sannkölluð graðhestamúsik. Iíiinvetningar tóku nú stjórn
sambandsins í sínar hendur og drifu sig norður fyrir fjöll.