Búnaðarrit - 01.01.1974, Blaðsíða 119
SKÝRSLUR STARFSMANNA
113
farin ár, en útgáfan er miðuS við, að áskriftargjöld og aug-
lýsingatekjur komi til jafns við kostnað, þá er ekki talin
með ýmis vinna á skrifstofu, svo sem spjaldskrárafgreiðsla,
bókhald o. fl.
Áskriftargjald ákvað útgáfustjóm kr. 400 árganginn.
Er þá talin með greiðsla fyrir skýrslur um Búvélaprófanir,
sem Rannsóknarstofnun landbúnaðarins gefur út og sendar
eru með Frey. Höfundatal árgangsins 1973 sýnir, að fleiri
samverkamenn liafa lagt til efni en nokkm sinni fyrr eða
rúmlega 70 samtals, en oftast hafa þeir verið milli 60 og
70. Þar að auki eni myndir komnar úr fleiri áttum. Tölu-
settar síður vom á árinu 578. Er það nokkm meira út-
gáfumagn en lofaS var fyrir áskriftargjaldið. Þar að auki
koma kápuauglýsingar, svo að samtals varð útgáfumagnið
40 arkir. Efnisvali var hagað álíka og áður, það er aðallega
frá faglegum vettvangi, en að nokkm þó seilzt yfir í al-
menn sveitalífs-viðhorf og fréttir. Efnisvalið er sniðið á
þann hátt, að það megi vera til framlialdsmenntunar fyrir
bændastéttina. Bændaskólarnir em sóttir af piltum, sem
flestir em innan við tvítugt eða svo ungir, að nokkur ár
líða, unz þeir hef ja búskap, en tímarnir færa nýjungar og
nýjar staðreyndir inn á vettvang búskapar frá ári til árs,
°g það á að vera hlutverk fagblaðs bænda að tjá þeim sitt-
hvað af þ ví, sem líklegt er, að þeim megi verða til gagns á
vettvangi starfsins.
2. Almenn búnaðarfræðsla
Sjálfsagt verður að telja, að iitgáfa Freys sé á fræðslu-
sviði. En í verkahring mínum hefur fleira af því tagi verið
á dagskrá, og má þar til nefna eftirfarandi:
a. Samskiptin við FATIS í París, en fara þverrandi.
Tímaritið AGRICULTURAL REVIEW berst nú aðeins á
ensku, þýzku og grísku, eitt eintak á hverju máli, en ekk-
ert til dreifingar.
b. Tengslin við upplýsingaþjónustu og menntastofnanir
á Norðurlöndum em í sömu sniðum og áður, og samskiptin