Búnaðarrit - 01.01.1974, Page 101
SKÝHSLUR STARFSMANNA
95
drjúgt við undirbúning lirossa fyrir fjórðungsmótið auk
álirifa og vakningar, er það liafði á hestamenn í þessum
héruðum.
Hrossaræktarsambandið Haukur í Eyjafirði og S.-Þing-
eyjarsýslu notaði 11 stóðliesta vorið 1972 til 185 liryssna,
og greiddar voru kr. 129.508.00 til starfsins. Leiguhestar
voru m. a. Neisti 587, Skollagróf, er liafði 63 hryssur, fylj-
unar % var 68,3, og Hrafn 583, Arnanesi, er liafði 32
hryssur, fyljunar % var 71,9. Þeir bafa báðir hlotið 1.
v. fyrir afkvæmi. Tamningarstöð var rekin á Höskuldsstöð.
um af hestamannafélaginu Funa, Eyjafirði. Ég ferðaðist
um og skoðaði ungfola dagana 5.—9. júní og sat aðalfund
á Dalvík 6. júní. Þá lieimsótti ég nokkra bæi í N.-Þing-
eyjarsýslu, en hef ekki komið þar áður í erindum lirossa-
ræktarinnar. Ég hvatti til stofnunar hestamannafélags og/
eða hrossaræklardeildar innan hrossaræktarsambandsins
Hauks, og tcl ég ekki vanta nema herzlumuninn að eitt-
bvað gerist.
Skagfir&ingar notuðu 17 stóðhesta til 264 liryssna og
fengu framlag kr. 196.468.00. Þar af voru þrír stóðhestar,
sem lilotið liafa verðlaun fyrir afkvæmi: Hörður 591 og
Stígandi 625 frá Kolkuósi og Sörli 653 frá Sauðárkróki,
sem var notaður langmest. Til lians voru leiddar 55 liryss-
ur og fyljuðust tæp 95% þeirra, sem er mjög góður árang-
ur. Tamningarstöðvar voru reknar af hestamannafélögun.
um í héraðinu, bæði á Sauðárkróki og í Torfgarði. Auk
þess er alltaf mikið tamið af hrossum á Hólum í Hjalta-
dal, bæði heimabrossum og lir sveitunum í kring. Hryssur
voru dæmdar og ungfolar skoðaðir 3., 4. og 5. júní. Roði
805 frá Brúnastöðum, Lýtingsstáðahreppi, var afkvæma-
rannsakaður á tamningarstöð. Skráð úttekt á afkvæmum
12. apríl: Þau reyndust vel sem reiðliross, vil jug og reist,
en bættir nokkuð til að gana, liafa allan gang, skeið þó
ekki hreint, en tölt ágætt, eru í meðallagi falleg, en helzti
ókostur var viðkvæmni.
Hunvetningar notuðu 22 stóðbesta til 357 bryssna og