Búnaðarrit - 01.01.1974, Blaðsíða 23
SKÝRSLA BÚNAÐARMÁLASTJÓRA
17
væri sumars. Bændur, sem upprekstur eiga á AuSkúlu-
heiði, tóku féð, sem komið var að afréttargirðingunni, og
réttuðu það 26. ágúst. Var það fátt og vel útlítandi. Viku
síðar tóku þeir, sem upprekstur eiga á Grímstungulieiði og
Haukagilslieiði, féð frá afréttargirðingunni. Var nokkuð
af fé samansafnað við afréttargirðingu norðan Víðidals-
fjalls, er þeir Árni G. Pétursson, ráðunautur, Sveinn Run-
ólfsson, landgræðslustjóri, og Guðmundur Þorsteinsson,
formaður gróðurverndarnefndar Austur-Húnavatnssýslu,
komu þangað 24. ágúst.
Við ferðafélagarnir skoðuðum land í ICróki í Víðidal í
þessari ferð með tilliti til, livort það hentaði til beitar- og
áburðartilrauna. Leizt okkur ekki á það vegna þess, live
lítið af því er þurrlent og því óhentugt til áhurðargjafar.
Búnaðarmálastjóri kom í nokkrar réttir í Árnessýslu,
Húnavatnssýslu og Borgarfirði haustið 1973 til að skoða
fé og hitta hændur að máli. Leit fé alls staðar á þessu
svæði óvenju vel út, enda grös ósölnuð um réttir.
Erlendir gestir
Að venju komu nokkrir erlendir gestir til Búnaðarfélags
Islands, er óskuðu ýmiss konar fyrirgreiðslu og upplýsinga
um íslenzkan landbúnað. Var reynt að verða við óskum
þeirra, eftir því sem við varð komið, og munu ráðunaut-
arnir geta þeirra, sem þeir greiddu götu, en hér verður
þeirra getið, sem húnaðarmálastjóri greiddi sérstaklega
fyrir.
Leonard J. Williams, búnaðarráðunautur, frá Aberyst-
wytli í Wales, kom ásamt konu sinni lil Islands 19. marz
og dvaldist liér til 30. marz. Þau hjón heimsóttu bænda-
skólann að Hvanneyri, Hestsbúið, Grund í Skorradal,
Varmalæk, Nes í Reykholtsdal, Brúar-Reyki í Stafliolts-
tungum, Gilsbakka og bæi þar í nágrenni, Gunnarsholt
og bæi þar í grennd og Litlu-Sandvík í Flóa.
Létu þau hjón vel af dvöl sinni hér og óskuðu eftir, að