Búnaðarrit - 01.01.1974, Blaðsíða 100
94
BÚNABARRIT
H rossarœktarráðunauturinn
Hrossaræktarsambönd eru nú 5 starfandi eins og undan-
farið. Ekki liafa enn verið mynduð slík sambönd í Aust-
firðingafjórðungi, en væri mjög æskilegt, svo að ræktun-
arstarfið þar, sem er í fullum blóma, nyti fjármagnsins
eins og aðrir landshlutar. Á Fljótsdalsbéraði liafa undan-
farin ár verið notaðir ágætir stóðbestar, sem teknir liafa
verið á leigu á vegum bestamannafélagsins Freyfaxa. Sum.
arið 1973 var þar Skýfaxi frá Selfossi, en árið 1972 feðg-
arnir Hrafn 583 og Faxi 646, báðir frá Árnanesi í Horna-
firði. Helztu stóðhestar, sem fram komu á f jórðungsmótinu
í surnar, voru Krapi 825, 5 v., Gunnlaugs Sigurbjörnssonar,
Egilsstaðakauptúni, dóttursonur Lýsings 409 og sonarson-
ur Blesa 500, og Kolbakur 826, 4 v., Péturs Jónssonar, Eg-
ilsstöðum, sem er líka dóttursonur Lýsings 409, en sonur
Sörla 653. Sá þriðji er Snær 824 Þórólfs Sölvasonar, Snjó-
liolti, undan Svip 385. 1 Hornafirði er sama fyrirkomulag
um ræktunarstarf hrossanna. Hestamannafélagið Hom-
firðingur hefur þar forystu. Notaðir liafa verið á undan-
förnum árum Faxi 646, og eru flest trippi fædd 1970 og
1971 undan honum, og einnig Hrafni 583 árin 1971 og
1972. Þá liafa Forni 627 og Geysir 821 verið notaðir lítils
háttar síðustu ár. Þeir vom báðir sýndir á Iðavöllum, og
hlaut Forni 2. v. fyrir afkvæmi og var seldur norður í
Skagafjörð, en Geysir hlaut 2. v. (án afkv.). Vora þeir
helztu stóðhestar úr Hornafirði, er á fjórðungsmótið
komn, en auk þeirra var sýndnr Skór 823, 2ja vetra, Bergs
Þorleifssonar, Flatey, og vakti mikla athygli. Fór hann
afburða vel á tölti, var reistur og viljugur, en hefur fóta-
galla og rýra afturbyggingu.
Mikil gróska var í tamningum, tvær stöðvar starfræktar
á Egilsstöðum og ein í Hornafirði. Reyndist það nota-