Búnaðarrit - 01.01.1974, Blaðsíða 240
234
BÚNAÐARRIT
Alls voru nú sýndir 1735 lirútar eða 48 lirútum fleira
en 1969. Af sýndum Jirútum voru 1063 tveggja vetra eða
eldri, sem vógu 99.4 kg og 672 veturgamlir, er vógu 80.3
kg til jafnaðar. Báðir aldursflokkar voru lieldur þyngri
en jafnaldrar þeirra 1969, þeir fullorðnu 0.4 kg og þeir
veturgömlu 0.7 kg þyngri. Þetta er mesti þungi á vetur-
gömlum lirútum á sýningum til þessa. Tveggja vetra og
eldri lirútar voru eins og oft áður þyngstir í Suður-Þing-
eyjarsýslu 104.2 kg, en létlaslir nú í Norður-Múlasýslu
96.8 kg. Veturgamlir hrútar voru einnig þyngstir í Súður-
Þingeyjarsýslu 83.4 kg, en léttastir í Suður-Múlasýslu 76.3
kg, sjá töflu 1, 2 og 4. Fyrstu verðlaun lilutu 865 eða 49.9%
sýndra hrúta, sem er 3.5% lakari röðun en 1969 sam-
kvæmt töflu 4. Hlutfallið var nú bezt í Norður-Þingeyjar-
sýslu 60.4%, en lakast í Suður-Múlasýslu 42.1%, sjá töflu
3 og 4. Tafla A—E sýnir I. verðlauna hrúta, flokkaða eftir
sýslum og hreppnm, ásamt ýmsum upplýsingum um hrút-
ana, svo sem ættemi, þunga, eigendur og helztu mál.
Stjarna við nafn hrúts táknar, að hann sé kollóttur eða
hnífilhyrndur.
Suður-Þingeyjarsýsla
Þar voru sýndir 494 lirútar eða um 40 fleiri en 1969, 274
fullorðnir og 220 veturgamlir eða 100 fleiri en fyrir fjór-
um árum. Báðir aldursflokkar voru nvi þyngri en jafn-
aldrar þeirra 1969, en röðun lieldur lakari, sjá töflu 4.
Fyrstu verðlaun lilutu 276 eða 55.9% sýndra hrúta, 196
fullorðnir, sem vógu 107.2 kg, og 80 veturgamlir, er vógu
88.3 kg. Hrútarnir voru þyngstir í Mývatnssveit, þeir full-
orðnu 112.9 kg, og veturgamlir 91.8 kg, en léttastir vom
veturgamlir í Reykjahreppi 74.9 kg. Álitamál er, hvort
nokkuð sé unnið við, að fullorðnir Iirútar fari mikið yfir
100 kg þunga. Mest framför í röðun hriita frá 1969 liefur
orðið í Ljósavatnslireppi og á Tjörnesi, og þó mest á Tjör-
nesi, sem nú var í þriðja sæti með jafnbezta hrúta á eftir