Búnaðarrit - 01.01.1974, Side 244
238
BÚNAÐARRIT
ur var Kjarna þá ekki veitt sú athygli sem skyldi. En á
þessari sýningu, sem og öðrum víða um land hin síðari ár,
hefur Kjarni ótvírætt sannað ágæti sitt. Uppruna annarra
I. verðlauna hrúta í Mývatnssveit mátti að jafnaði rekja
til kunnra ætta.
Reykdœlahreppur. Hrútamir voru aðeins léttari en
jafnaldrar þeirra 1969 og röðun lakari, en mun fleiri
sýndir að þessu sinni. Af þriggja vetra og eldri lirútum
voru taldir heztir Dofri Haraldar á Breiðumýri, fæddur
lijá Þorgeiri Pálssyni, Húsavík, Kúði á Daðastöðum frá
Bjarnastöðum í Bárðardal, Illyni og Neisti í Kvígindisdal,
Hlyni fæddur að Laxamýri, og Stubbur Sf. Reykdæla,
ættaður frá Baldursheimi í Mývatnssveit. Af tvævetrum
hrútum voru beztir Þeli Sigurðar á Öndólfsstöðum fædd-
ur Árna, Sjóli Haraldar á Breiðumýri frá Þorgeiri Páls-
syni á Húsavík, Gylfi á Stórulaugum, Sómi Arnkels á
Breiöumýri frá Ökrum og Bjartur á Kárlióli frá Árna á
Öndólfsstöðum. Dáni á Daðastöðum og Prúður Jóns á
Grundargili voru beztir af veturgömlum. Beztu hrútamir
vom vel gerðir, en hópurinn sem lieild um of sundur-
leitur og misjafn að gæðum.
A(ialdœlahreppur. Fullorðnu hrútarnir voru um 6 kg
þyngri en jafnaldrar þeirra 1969, en þeir veturgömlu nú
ívið léttari og röðun hrúta lakari, en sem næst þrefalt
fleiri veturgamlir vom sýndir að þessu sinni. Hrútarnir
voru misjafnir að gæðum, þcir veturgömlu margir þroska-
litlir og holdgrannir. Grófbyggðir hrútar og háfættir á
öllum aldri voru lioldlitlir. Af eldri lirútum voru beztir
Keli Jóhannesar í IClambraseli frá Tóvegg í Kelduhverfi,
og Óðinn og Hafur Hólmgríms í Hrauni, sá síðamefndi
frá Hafralæk. Beztu tvævetra hrútarnir vom Þór Kletts-
son Hólmgríms í Hrauni frá Klambraseli, Fífill á Hafra-
læk og Fróði í Haga. Böggull í Hjarðarhaga frá Prest-
livammi, Rokkur Kjartans í Hrauni, Vargur í Fagranes-
koti, fæddur Sigurði á Grænavatni, Sóti í KJambraseli og
Þór í Norðurhlíð frá Hjarðarbóli vom beztir af vetur-