Búnaðarrit - 01.01.1974, Blaðsíða 74
68
BÚNAÐARRIT
lióf Landbúnaðar- og matvælastofnun Sameinuðu þjóð-
anna (FAO) tilraun, er endanlega leiðir að svipuðu marki,
þótt framkvæmd sé á annan hátt, þ. e. mörg afbrigði prófuð
í einu í sama landi. FAO lagði áherzlu á, að rannsóknin
færi fram í landi, þar sem stórar hjarðir væru, og varð
Pólland fyrir valinu. 1 tilraiminni eru notuð 40 naut af
svartskjöldótta kyninu frá liverju af 10 löndum, og hið
fæsta aldar 30 kvígur undan hverju þeirra. Þar munu
næstu 3 ár fæðast 12000 kvígur, sem aldar verða til mjólk-
urframleiðslu, og jafnmargir nautkálfar, sem aldir verða
til slátrunar. Verður fróðlegt að fylgjast með niðurstöðum
þessarar víðtæku tilraunar. FAO liefur í atliugun prófun
á fleiri kynjum með sæðisflutningum til Austur-Evrópu-
landa, þar sem bú eru stór. 4) Notkun hormóna til að
stjórna gangmálum, frjóvgun og þar með burðartíma kúa.
Víðtækar tilraunir liafa verið gerðar í Frakklandi, er sýna,
að þetta er hægt. Hins vegar eru enn svo miklir ókostir
og annmarkar samfara, að aðferðin er ekki komin á það
stig enn, að bún liafi hagnýtt gildi, a. m. k. ekki við mjólk-
urframleiðslu. 5) Þá var mikið rætt um notkun maísplönt-
unnar sem grænfóður og í votliey og einnig þurrkaðrar,
en með þeim umræðum fylgdist ég ekki. Virðist þessi
notkun vera að breiðast út á meginlandinu. 6) Loks var
rætt um búsvist mjólkurkúa og nauðsyn þess að geta haft
þá tilhögun á stórum kúabúum, að ekki dragi úr afurða-
semi, sem þarf að vera sem mest. Síðustu atriðin voru rædd
á sameiginlegum fundum við ldutaðeigandi nefndir. 1
erfðafræðinefndinni var m. a. rætt um þróun nýrra mjólk-
urkynja í Evrópu, aðferðir við ræktun lioldakynja, kjöt-
framleiðslu með blendingsrækt, ræktunaraðferðir með tví-
nytja kyn til að framleiða bæði mjólk og kjöt o. fl. Flest af
þeim málum, sem á dagskrá voru hjá þeim 3 nefndum, sem
ekki fjalla um ákveðnar búf jártegundir, voru á sviði naut-
griparæktar og svínaræktar, en tiltölulega fá um aðrar
tegundir búfjár.
Að ráðstefnunni lokinni hélt ég til Englands til að kynn-