Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 23
BÚNAÐARRIT
xxi
íslenska bændur betur en nokkur annar. í þriðja lagi var
hann eins og áður er vikið að bráðgáfaður, hámenntaður og
mikill tungumálamaður og snjall ræðumaður. í fjórða lagi
var honum sýnt um fjármál og í rekstri Búnaðarfélags
íslands var hann gjörhugull og hygginn, enda naut hann
mikils trausts bænda og einnig íslenskra stjórnvalda.
Það var í september 1965 að Búnaðarfélagið flutti úr
gamla Búnaðarfélagshúsinu við Tjörnina í Bændahöllina
við Hagatorg. Þar skapaðist aðstaða fyrir Búnaðarfélag
Islands með leiðbeiningaþjónustu þess ásamt öðrum verk-
efnum, sem það hefur með höndum, og sú aðstaða á vart
sinn líka, og nú rættust draumar þeirra baráttu- og
bjartsýnismanna, sem með ótrúlegri þrautseigju stóðu af
sér allar úrtölur og mótbyr og tókst að fullgera þetta
veglega hús til afnota fyrir stofnanir landbúnaðarins. Þó
einkennilegt megi virðast, þá var Halldór ekki í baráttusveit
þeirri, sem reisti Bændahöllina, og held ég að hann hafi
óttast, að djúp hægindi og glæstir veislusalir Bændahallar-
innar gætu gert stofnunina værukæra, svo að markmiðin
sljóvguðust. Sem betur fer hefur ekki bryddað á þessu
ennþá, enda er einnig rétt að benda á í þessu sambandi, að
þegar kom til orða að minnka eignarhlutdeild Búnaðarfél-
agsins í Bændahöllinni á móti Stéttarsambandi bænda, þá
snerist Halldór gegn því af miklum móði og hörku.
A árunum, sem fylgdu eftir vistaskipti Búnaðarfélagsins,
styrktist starfsemin á allan hátt undir öruggri stjórn Hall-
dórs Pálssonar. I því sambandi verður fyrst fyrir að minna á
ráðunautanámskeiðin, sem urðu brátt að mjög öflugum
endurmenntunartíma fyrir héraðsráðunautana, og jafn-
framt skapaðist mikilvægt samband leiðbeinenda Búnaðar-
sambandanna við ráðunauta Búnaðarfélags íslands og
starfsmenn Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins. Til við-
bótar þessu hafa í vaxandi mæli verið haldnir stærri sem
smærri fundir á vegum Búnaðarfélags íslands um mörg
sérsvið landbúnaðarins og þannig skapaður traustur