Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 46
18
BÚNAÐARRIT
fóörun og fóðurefni, loðdýrarækt, áburðartíma og sláttu-
tíma, matvælarannsóknir, framleiðslustjórnun, ferðaútveg í
sveitum o. fl.
Námskeið fyrir loðdýrabændur í skinnaflokkun voru
haldin 19.—29. júní með tilstyrk Sambands íslenskra loð-
dýraræktenda og danska loðdýraræktarsambandsins. Tveir
danskir kennarar komu með skinnabúnt til kennslunnar.
Námskeiðin voru á Hvanneyri, Akureyri, Egilsstöðum og í
Hveragerði og stóð hvert í tvo daga. Flestir loðdýrabændur
mættu á námskeið þessi. Sigurjón Bláfeld sá um nám-
skeiðin f. h. B.í. og vísast til starfsskýrslu hans.
Fundur um hrossaeign og hrossabúskap með tilliti til
landnýtingar og markaðsmála var haldinn í Bændahöllinni
15. ágúst að frumkvæði B.í. og Landgræðslu ríkisins.
Aðrir, sem að fundarboði stóðu, voru Framleiðsluráð
landbúnaðarins og Stéttarsamband bænda.
Auk framangreindra aðila sátu fundinn fulltrúar land-
búnaðarráðuneytisins, Hagsmunafélags hrossabænda, Bú-
vörudeildar S.f.S. og Landssambands hestamanna.
Á fundinum var gerð ályktun, sem leiddi til þess, að
landbúnaðarráðherra fól tveimur mönnum, þeim Agli
Bjarnasyni og Bjarna Guðmundssyni, að „kanna markaðs-
horfur fyrir hross og hrossakjöt og hvort hrossastofninn í
landinu væri við hæfi miðað við markaðsmöguleika og
hæfilega landnýtingu".
Niðurstöður af athugunum þeirra hafa birst m. a. í
Eiðfaxa.
Fundur formanna búnaðarsambandanna var haldinn að
venju daginn fyrir Búnaðarþing, nú 20. febrúar. Búnaðar-
félag íslands aðstoðaði við undirbúning og fundarhaldið.
Útgáfustarfsemi
Búnaðarfélag íslands gefur reglubundið út Búnaðarritið,
sem ævifélagar fá, Frey, sem kemur út hálfsmánaðarlega