Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 69
SKÝRSLUR STARFSMANNA
41
haldin var í Menningarmiðstöðinni að Gerðubergi, Reykja-
vík, dagana 24.6—3.7. Sýnd voru afskorin blóm í þúsunda-
tali ásamt hundruðum pottaplantna á 750 m2 gólffleti. Lögð
var mikil vinna í allan undirbúning og fullyrða má, að
sýningin hafi verið sú tilkomumesta, sem hér hefur verið
haldin til þessa og eigendum Blómamiðstöðvarinnar h/f til
mikils sóma. Eigi að síður var aðsókn ótrúlega dræm,
hugsanlega aðeins um 5000 sýningargestir. Á sýningunni
flutti ég tvö erindi um fjölgun, meðferð og umhirðu á
stofublómum fyrir samtals um 130 áheyrendur.
Að öðru leyti vil ég geta þess, að ég fór í 3 ferðir
utanlands. í fyrsta lagi sótti ég ráðstefnu NJF, sem haldin
var í Helsinki um mánaðamótin júní/júlí. Þar flutti ég
Finnum sameiginlega kveðju annarra Norðurlanda við
opnun ráðstefnunnar. Eins annaðist ég fundarstjórn í
garðyrkjuskor. Eftir ráðstefnuna tók ég þátt í kynnisferð til
Turku, en á leiðinni var víða komið við á garðræktarbýlum
og skoðaður rekstur þeirra.
Aftur fór ég utan til Svíþjóðar í ágúst. Ég sat sumarfund
Norræna genbankans í Julita. Var ég fjarverandi 6.—13.
ágúst.
Að lokum sótti ég miðstjórnarfund NJF í Kaupmanna-
höfn fyrst í desember og viku síðar sameiginlegan fund
norrænu garðyrkjufélaganna, en þar mætti ég sem fulltrúi
f. h. Garðyrkjufélags íslands. Á þeim fundi var gengið
formlega frá stofnun samtaka norrænu garðyrkjufélaganna,
en það hafði verið í undirbúningi um skeið. Var Odvar
Nordli, fv. forsætisráðherra Norðmanna, kjörinn formað-
ur. Að öðru leyti vil ég geta þess, að ég er enn þá í
hlutastarfi hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins, en þar
hef ég umsjón með ýmsum garðyrkjuverkefnum, sem
stofnunin annast.
Að lokum þakka ég ánægjulegt og gott samstarf við alla
þá, sem ég hafði samskipti við á árinu.
í janúar 1984,
Óli Valur Hansson.