Búnaðarrit - 01.01.1984, Síða 97
SKÝRSLURSTARFSMANNA
69
Fundir og ferðalög. Alls urðu ferðadagar 65, þar með
talin ferð til Finnlands á þing NJF, sem haldið var þar í
byrjun ágúst. Ég fór skemmri ferðir, s. s. í ullarskoðunar-
ferð á Strandir í febrúar, skoðaði hrúta vegna hugsanlegs
flutnings á sæðingarstöð, fór með útlendinga, fór eina ferð
upp á heiðar að skoða beitartilraunir, fór á fundi, en mest
var ég á ferðinni vegna haustanna við afkvæmarannsóknir,
afkvæmasýningar, hrútasýningar, héraðssýningar og feld-
fjárskoðun. Þá fór ég eina ferð í byrjun desember til að
skoða s. k. jólalömb hjá sex bændum á Suðurlandi. Til-
gangurinn var að kanna, hvernig gengi að meta á lömbun-
um lifandi hvort þau væru hæfilega feit og hefðu nógu mikla
vöðva á baki, í lærum og í framhrygg til að teljast úrvals
vara, en það er álit þeirra, sem gerst þekkja, að svo verði
að vera til að hægt sé að selja þetta kjöt sem sérstaka vöru.
Kynbótanefnd. Búnaðarþing 1983 samþykkti að koma á
kynbótanefnd í sauðfjárrækt, samkvæmt búfjárræktar-
lögum. Kaus það 4 menn í nefndina. Þeir eru:
Aðalmenn
Hjalti Gestsson
Leifur Kr. Jóhannesson
Einar E. Gíslason
Grímur B. Jónsson
Varamenn
Sigurmundur Guðbjörnsson
Jón Hólm Stefánsson
Ólafur G. Vagnsson
Páll Sigbjörnsson
Stjórn Búnaðarfélagsins skipaði mig formann nefndar-
innar.
Kynbótanefndin hélt einn fund. Þar var meðal annars
fjallað um breyttar reglur við afkvæmasýningar á sauðfé.
Skrifstofan. Þar voru störfin venju lík. Bréfaskriftir,
viðtöl við innlenda og erlenda aðila, fundarseta og skriftir.
Að lokum þakka ég bændum, héraðsráðunautum, sam-
starfsfólki í B. í., búnaðarmálastjóra og stjórn Búnaðarfé-
lags íslands samstarfið á árinu. Sérstaklega vil ég þakka
Jóni Viðari, Sigurjóni Bláfeld og Halldóri Árnasyni fyrir
störf við verkefni í sauðfjárrækt.
Reykjavík í janúar 1984,
Sveinn Hallgrímsson