Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 100
72
BÚNAÐARRIT
Sunnlendingar hafa fækkað um Mósa 773 frá Prestshúsum
og Blæ 906 frá Hellu, en keyptu Vin 923 frá Kotlaugum á
árinu. Högni 884 frá Sauðárkróki var afkvæmarannsakaður
s. 1. vetur. Sambandið stóð að kynningu þ. 07.05 á nokkr-
um stóðhesta sinna á kappreiðavelli Fáks, Víðivöllum,
Rvk., og höfðu mikið gagn af. Þar voru sýndir: Gáski 920
frá Hofsstöðum, Borg., Skór 823 frá Flatey, Sörli 876 frá
Stykkishólmi, Feykir 962 frá Hafsteinsstöðum og Hrafnkell
858 frá Ólafsvöllum. Sumir þeirra voru í góðri þjálfun. —
Þá var aukasýning í Gunnarsholti á sýningardegi Stóðhesta-
stöðvar á sunnlenskum tömdum stóðhestum úr nágrenninu.
Allt er þetta til að efla starfið og kemur í stað vormóta á
Hellu, sem nú hafa lagst af. Eg tel að Sunnlendingar eigi að
íhuga vel slíkt sýningahald á vordögum á stóðhestum sínum,
bæði sambandið og aðrir. Kynningin er nauðsynleg sí og æ
og venjulegar fjórðungs- og landssýningar leysa ekki nauð-
syn þessa máls nægilega.
Dalamenn halda sínu striki, óbreyttur er stóðhestakostur-
inn og mikill áhugi er á að koma á afkvæmasýningu á
Dreyra 834 á fjórðungsmóti í vor. Er það nú í undirbúningi,
en byggist á hrossum fæddum fyrr en hesturinn kom í Dali.
Sú skoðun kom fram á aðalfundi sambandsins 3. maí s. 1.
að ekki þurfi að reikna með reiðhestasölu úr héraðinu fyrr
en hross Dalamanna sönnuðu ágæti sitt og kæmu vel út í
dómum o. fl. á sýningum.
Formaður sambandsins og ráðunautur, Jón Hólm Stef-
ánsson, flutti burt úr héraðinu s. 1. vor. Hann hefur unnið
að því starfi af miklum dugnaði og er með bestu samstarfs-
mönnum er ég hefi kynnst. Ég veit að ég mæli fyrir munn
margra hestamanna þar er ég þakka honum prýðileg störf
og færi honum og fjölskyldu hans einlægar þakkir fyrir góð
kynni. — Ég skora jafnframt á Dalamenn að láta ekki
undan síga í starfinu og bjóðum nýjan formann, Svavar
Jensson, velkominn til starfa.
Myndarlegt framtak hestamannafélagsins er nýtt og