Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 140
112
BÚNAÐARRIT
aðalfundi Landverndar. Að venju mætti ég á allmörgum
bændafundum, svo og á fundum með hreppsnefndum og
stjórnum upprekstrarfélaga, og flutti þá oftast fræðsluer-
indi. Þessir fundir voru að Ýdölum í Aðaldal, Suður-
Þingeyjarsýslu; í Kolbeinsstaðahreppi, Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu; í Ásbyrgi í Miðfirði, Vestur-Húnavatns-
sýslu; í Flóðvangi í Þingi, Austur-Húnavatnssýslu; á
Sauðárkróki, Hofsósi, Hólum í Hjaltadal og í Varmahlíð,
Skagafjarðarsýslu; í Biskupstungnahreppi og Þingvalla-
hreppi, Árnessýslu. Einnig flutti ég fræðsluerindi í Bænda-
skólanum á Hólum, hjá Lionsklúbbi Hveragerðis og Hesta-
mannafélaginu Smára í Hreppum og Skeiðum, Árnessýslu.
Ráðunautafund Búnaðarfélags íslands og Rannsóknastofn-
unar landbúnaðarins sat ég að venju, flutti þar stutt erindi
um samstillingu burðar áa, sem síðar birtist í 21. tbl. Freys
1983, og var meðhöfundur erindis um samband á milli
eistnastærðar lambhrúta og frjósemi áa.
Önnur síörf. í fjórða skiptið ritstýrði ég Handbók bænda.
Hún var tilbúin til prentunar skömmu fyrir jól og stefnt að
útgáfu hennar fyrr en verið hefur um árabil. Að ósk
stjórnar Búnaðarfélags íslands aðstoðaði ég Allsherjar-
nefnd Búnaðarþings á meðan það sat. Nokkuð var um
bréfaskriftir og fyrirgreiðslu af ýmsu tagi, svo sem vegna
heimsókna erlendra gesta, fyrir námsfólk í landbúnaði og
öðrum greinum, og vegna ritarastarfa fyrir Sauðfjár- og
geitadeild Búfjárræktarsambands Evrópu (EAAP). í frí-
stundum flutti ég nokkra fyrirlestra um búfjárframleiðslu
fyrir matvæiafræðinema í Háskóla Islands, var leiðbeinandi
við námsverkefni í landnýtingu og prófdómari í sauðfjár-
rækt við Búvísindadeildina á Hvanneyri, annaðist kennslu í
sauðfjárrækt fyrir Bréfaskólann og sinnti minni háttar
rannsóknum og ritstörfum þeim tengdum.
Stjórn Búnaðarfélags íslands, búnaðarmálastjóra og
öðru starfsfólki félagsins þakka ég ágætt samstarf.
Á gamlársdag 1983,
Ólafur R. Dýrmundsson.