Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 247
BÚNAÐARÞING 219
mun lengra, og nægir þar að nefna frumvarp Alþýðuflokks-
ins um eignarhald ríkisins á landinu öllu.
Búnaðarþing hefur ætíð mótmælt þeim sjónarmiðum,
sem liggja að baki þessa frumvarps, og vísast til frekari
rökstuðnings í ályktunum og greinargerðum frá Búnaðar-
þingi um þessi mál, þ. e. mál nr. 39 1972, mál nr. 36 1973,
mál nr. 23 1975 og mál nr. 9 1978.
Mál nr. 16
Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 95/1981 um
Framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðl-
un og sölu á landbúnaðarvörum o. fl., 67. mál 106.
löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var
með 22 samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþingi er kunnugt um, að ríkisstjórnin hefur í
athugun heildarendurskoðun á lögum nr. 95/1981 um
Framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðl-
un og sölu á landbúnaðarvörum o. fl. Þingið telur ekki rétt
að taka einstök atriði laganna til breytinga meðan framan-
greind athugun stendur yfir.
Þá telur Búnaðarþing, að frumvarp það, sem hér um
ræðir, gangi gegn hagsmunum framleiðenda og neytenda
og sé því á misskilningi byggt.
Því leggur þingið til, að frumvarpið verði ekki afgreitt.
Greinargerð:
í greinargerð með frumvarpinu kemur fram, að tilgangur
þess sé sá, að fella niður heimild til handa Framleiðsluráði
landbúnaðarins að viðurkenna Samband eggjaframleið-
enda sem sölufélag eggjaframleiðenda. Með því að fella
slíka heimild niður er í reynd verið að koma til móts við þá
þróun, að eggjaframleiðendum fækki, og fáir stórir fram-
leiðendur verði allsráðandi í eggjaframleiðslunni. Þeir ráði
L