Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 249
BÚNAÐARÞING
221
Búnaðarþing mælir með, að Alþingi samþykki tillögu um
athugun á betri nýtingu og bættum rekstrargrundvelli
sláturhúsa. Því leggur þingið til, að fyrri liður tillögunnar
verði samþykktur með þeirri breytingu, að athugunin nái til
allra sláturhúsa í landinu.
Varðandi síðari lið tillögunnar bendir þingið á, að fjár-
festing í endurbótum og nýbyggingu sláturhúsa er mikil og
leiðir oft af sér háan fjármagnskostnað. Því getur verið
nauðsynlegt að sameina minni hús og fækka sláturhúsum.
Endurnýjun eldri sláturhúsa og byggingu nýrra þarf því að
skoða í allstórum heildum. M. a. þarf að meta nýtingu og
afkastagetu þeirra húsa, sem endurbyggð hafa verið á síðari
árum, og kanna, hvort ónotuð aðstaða í þeim getur sparað
nýbyggingu eða endurbætur annarra sláturhúsa, ef þau
væru fullnýtt.
Þá leggur Búnaðarþing til, að jafnhliða þeirri athugun,
sem tekið er undir í umræddri þingsályktunartillögu, verði
nefndarálit sláturhúsanefndar, sem skipuð var með bréfi
landbúnaðarráðherra, dags. 15. maí 1979, tekið til endur-
skoðunar. Enn fremur verði athugað, hvernig fjármögnun
til uppbyggingar sláturhúsa hefur verið háttað í reynd, og
hvaða úrbætur þurfi að gera á því sviði.
Mál nr. 19
Tillaga til þingsályktunar um fiskeldi og rannsóknir á klaki
og eldi sjávar- og vatnadýra, 91. mál 106. löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var
með 24 samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing hefur til athugunar Tillögu tilþingsályktun-
ar umfiskeldi o. s. frv., 91. mál 106. löggjafarþings. Þingið
lýsir eindregnum stuðningi við meginefni tillögunnar,
auknar rannsóknir á sviði klaks og fiskeldis, jafnt fersk-
vatnsfiska og sjávarfiska og-dýra.