Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 250
222
BÚNAÐARRIT
Búnaðarþing vill benda á, að tvær stofnanir eiga þarna
verksvið, þ. e. Hafrannsóknastofnun að því, er varðar
sjávardýr, og Veiðimálastofnun að því, er tekur til fersk-
vatnsfiska. Telur Búnaðarþing að mestu skipti fyrst um
sinn, að stofnanir þessar fái fé og aðstöðu til að sinna
þessum merku verkefnum. Að því er verksvið Hafrann-
sóknastofnunar varðar, telur Búnaðarþing ekki ástæðu til
sérstakrar umfjöllunar umfram þá almennu ályktun, að hér
sé um að ræða stórbrotið framtíðarverkefni, er þörf sé að
undirbúa með rannsóknum. Veiðimálastofnun fæst við
tilraunir og rannsóknir varðandi það fiskeldi, sem til
landbúnaðar heyrir, þ. e. eldi ferksvatnsfiska. Þetta starf á
vegum stofnunarinnar fer fram í laxeidisstöðinni í Kolla-
firði, og þarf að efla það rækilega. Nokkurt fiskeldi er
þegar hafið í landinu á grunni innlendrar og innfluttrar
þekkingar. Búnaðarþing vill minna löggjafann á, að aukin
þekkingaröflun og uppbygging atvinnustarfsemi í þessari
búgrein er fyrst og fremst komin undir nægu fé til þessara
hluta og tekur því sérstaklega undir 3. tölulið þingsályktun-
artillögunnar. Jafnframt vill Búnaðarþing leggja áherzlu á,
að þessi búgrein sem aðrar nýjar verði sem skipulegast
notuð eftir því, sem aðstæður til slíks búskapar leyfa, til
þess að efla atvinnulíf í dreifbýli, sem á í vök að verjast um
sinn vegna örðugra markaðsskilyrða fyrir búvörur.
Mál nr. 20
Tillaga til þingsályktunar um landnýtingaráætlun, 106. mál
106. löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var
með 23 samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing mælir með því við Alþingi, að það samþykki
þingsályktunartillögu Davíðs Aðalsteinssonar o. fl. um
landnýtingaráætlun, 106. mál 106. löggjafarþing.