Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 257
BÚNAÐARI’ING
229
Greinargerð:
Enn hefur ekki verið sett reglugerð við lög um fóðurverzlun
og fleira frá 1978, og margra hluta vegna brýnt, að svo verði
gert hið fyrsta. Við það verk þarf m. a. að setja afdráttar-
laus ákvæði um bann við lyfjablönduðu og litarefnablönd-
uðu fóðri, en forstöðumaður Fóðureftirlits ríkisins telur, að
nú séu fluttar til landsins fóðurblöndur fyrir svín og hænsni,
sem blandaðar séu fúkkalyfjum. Enn fremur þarf að búa
svo um hnúta með reglugerðarbreytingum eða á annan
hátt, að tekið verði upp framleiðslubókhald við fiskmjöls-
framleiðslu til innanlandssölu ásamt framleiðslumerking-
um, er svari til efnagreindra sýna, þannig að bændur geti
fengið upplýst innihald þeirrar vöru, er þeir kaupa, líkt og á
sér stað við graskögglaframleiðslu. í viðræðum við menn
frá Fóðureftirliti ríkisins og Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins komu fram upplýsingar, sem benda til, að með samstarfi
þessara stofnana mætti koma fyrrgreindum umbótum til
leiðar á tiltölulega einfaldan hátt.
Mál nr. 29
Erindi Búnaðarsambands Suðurlands um úrbœtur á gæðum
íslenzku ullarinnar.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var
með 25 samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing hefur kannað að nokkru fullyrðingar þær,
sem formannafundur Búnaðarsambands Suðurlands vitnar
til í tillögu, sem lögð er fram á þingskjali nr. 29, þar sem
staðhæft er, að vinnslueiginleikar íslenzku ullarinnar hafi
versnað hin síðari ár.
Af þeim gögnum, sem handbær eru frá móttökuaðilum
(ullarþvottastöðvum), er ekki hægt að sjá, að það sé svo
afgerandi, að slík fullyrðing eigi rétt á sér, þar sem
breytingin fyrst og fremst er fólgin í því, að hjá annarri
ullarþvottastöðinni hefur orðið tilfærsla milli úrvalsflokks