Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 264
236
BÚNAÐARRIT
1. Að afgreiðslu málsins verði hraðað á Alþingi, svo að
ekki dragist enn um of, að bændur og þeir aðilar, sem
málið varðar, viti niðurstöður þess.
2. Framkvæmd verði hagað þannig, að tryggt verði fé til
50% útborgunar skuldabréfa, og Seðlabanka eða
öðrum peningastofnunum gert skylt að kaupa eftir-
stöðvar á næstu þremur árum.
3. Lánstími verði 12 ár. Lánin verði án afborgana 2 fyrstu
árin, en greiðist síðan með jöfnum afborgunum á 10
árum.
4. Viðkomandi ráðuneyti veiti ábúendum ríkisjarða veð-
leyfi, svo að tryggt verði, að þeir eigi jafna möguleika á
skuldbreytingu og þeir bændur, er sitja eigin jarðir.
Greinargerð:
Frumvarpið mælir fyrir um heimild til veðdeildar Búnað-
arbanka íslands til útgáfu bankavaxtabréfa, sem notuð
verði til þess að breyta í föst lán lausaskuldum bænda vegna
fjárfestinga á jörðum þeirra árin 1979—1983 að báðum
árum meðtöldum, svo og skuldum vegna jarðakaupa, véla-,
bústofns- og fóðurkaupa.
Búnaðarþing 1983 ályktaði um fjárhagsmál bænda og
lagði þá m. a. áherzlu á skuldbreytingu á lausaskuldum í
föst lán. Síðast liðið ár var eitt það harðasta, sem komið
hefur á þessari öld og varð því landbúnaðinum mjög erfitt
og kostnaðarsamt. Rekstrarfjárstaða landbúnaðarins hefur
því enn versnað, og hefur varla í annan tíma verið erfiðari
en nú. Því leggur Búnaðarþing á það ríka áherzlu, að á
þessu máli verði tekið hið bráðasta og fjármagnsútvegun og
önnur framkvæmd málsins verði ekki lakari en lagt er til í
meðfylgjandi ályktun. Pó að ekki Iiggi fyrir endanlegar
tölur um, hvað háar upphæðir hér er að ræða, þar sem
umsóknarfrestur um skuldbreytingu er ekki útrúnninn, er
það ljóst, að hundruðir bænda eru nú komnir í algjört
greiðsluþrot og við blasir hrun í íslenzkum landbúnaði, taki