Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 273
BUNAÐARÞING
245
Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags íslands að láta
gera svo fljótt sem við verður komið, áætlun um verkefni,
sem henta myndi fyrir búnaðarsamböndin að tölvuvinna og
þann kostnað, sem leiða myndi af tölvukaupum sam-
bandanna.
Enn fremur að undirbúa vinnslu þess hugbúnaðar, sem
með þarf, ef tölvutæknin verður innleidd hjá búnaðarsam-
böndunum að fengnum þeim niðurstöðum, sem fram koma
í verkefnaskrá og kostnaðaráætlun.
Greinargerð:
Búnaðarfélag íslands hefur um árabil notað tölvu við
úrvinnslu á ýmsum skýrslum, sem notaðar eru af
leiðbeiningaþjónustunni. Tölvuvinnslan hefur aukizt ár frá
ári, sérstaklega þó á allra síðustu árum.
Stórstígar tækniframkvæmdir hafa leitt til, að vélbúnaður
hefur sífellt farið lækkandi í verði. Aftur á móti eykst
kostnaður við hugbúnað, þar sem almennt eru gerðar
auknar kröfur til þess, að hann geti komið nánast öllum að
notum. Örtölvubyltingin hefur einnig leitt til, að þessari
tækni er beitt við lausn sífellt fleiri og fjölbreyttari verk-
efna.
Ljóst er, að eigi hin dreifða leiðbeiningaþjónusta á
vegum búnaðarsambandanna að fylgjast með í tímans rás,
þá hlýtur hún að taka þessa tækni í þjónustu sína í miklum
mæli á allra næstu árum.
Vitað er, að þau verkefni, sem fengist er við, eru mikið
þau sömu frá einu búnaðarsambandi til annars. Nokkur af
þessum verkefnum eru þess eðlis, að þegar er á markaði
hugbúnaður, sem nota má við vinnslu þessa. Fjölmörg
verkefni eru aftur á móti sérstök fyrir þessa starfsemi og
krefjast þá eigin hugbúnaðar til, að þau verði leyst á
viðunandi hátt.
Búnaðarsamböndin hafa ekki yfir að ráða sérþekkingu til
vinnslu á slíkum hugbúnaði, auk þess sem starfskraftar