Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 280
1
252 BÚNAÐARRIT
frekari aðgerðum til útrýmingar riðu, og sérstaklega þar,
sem hún er að koma upp á nýjum svæðum.
Mál nr. 50
Frumvarp til breytinga á lögum nr. 42 12. maí 1969 um
afréttarmálefni, fjallask.il o. fl.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktunum, sem samþykkt-
ar voru í einu lagi með 22 samhljóða atkvæðum að
undangenginni atkvæðagreiðslu um hvora fyrir sig.
Ályktun búfjárrœktarnefndar, er allir nefndarmenn stóðu
að.
Búnaðarþing hefur athugað frumvarp til breytinga á
lögum um afréttarmálefni, fjallskil o. fl. (fylgiskjal I)
samkvæmt bréfi landbúnaðarráðuneytisins á þingskjali 59.
Frumvarpið hefur verið borið saman við annað frumvarp
um sama efni, sem lagt er fram sem fylgiskjal II, og er
efnislega að kalla samhljóða frumvarpi, er Búnaðarþing
1983 fjallaði um, að innfelldum breytingartillögum þeim, er
Búnaðarþing gerði þá.
Búnaðarþing 1983 taldi það frumvarp með þeim
breytingartillögum heppilega lagasmíði um mörk og mar-
katilhögun í landinu. Það frumvarp, sem hér er beiðst
umsagnar um, er talsvert breytt frá hinu fyrra, að því er
varðar uppröðun atriða, og skiptir það flest litlu eða engu
máli. Fáeinum efnisatriðum er breytt, flestum lítils háttar.
Skal hér gerð grein fyrir þeim, er Búnaðarþing telur máli
skipta:
1. Heimildarákvæði fyrir ráðherra til að ákveða í reglu-
gerð, að tölva sé notuð við gerð allra markaskráa (þ. e.
sameiginleg tölvufærsla allra marka í landinu), er tekið
út úr 68. gr. í eldra frumvarpinu (fskj. II). Svipað
ákvæði er að finna í 66. gr. í nýrra frumvarpinu (fskj.
I). Orðalag er þar óljóst um þetta atriði (sbr. 3.
málsgrein stafliðar d). Þar er ráðherra heimilað að fela