Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 286
258
BÚNAÐ ARRIT
*
Greinargerð:
Búnaðarþing 1982 kaus 3ja manna nefnd til að fjalla um
málefni Bjargráðasjóðs. Hinn 23. marz sama ár skipaði
þáverandi félagsmálaráðherra 5 manna nefnd í sama skyni.
Þeir þrír menn, sem Búnaðarþing tilnefndi, tóku allir sæti í
hinni stjórnskipuðu nefnd.
Þær tillögur, sem fram koma í álitsgerð nefndarinnar, eru
m. a. þessar:
1. Viðlagatrygging bæti tjón af völdum foks og óveðurs á
öllum þeim verðmætum, sem undir þau lög falla, svo
sem tjón á girðingum umhverfis ræktunarlönd.
2. Samið verði um sérstakar tryggingar hjá starfandi
tryggingarfélögum vegna eftirtalinna búgreina: gróður-
húsaræktar, fiskiræktar, þ. m. t. klak- og eldisstöðvar,
alifuglaræktar, loðdýraræktar, svínaræktar og bruna-
trygginga á heyjum og búfé.
3. Varðandi tjón á búfé í hefðbundnum búgreinum, þ. e.
nautgriparækt, sauðfjárrækt og hrossarækt, og upp-
skerutjón á garðávöxtum og tjón vegna grasbrests og
óþurrka, leggur nefndin til, að framvegis verði svipað
fyrirkomulag og verið hefur hjá búnaðardeild Bjarg-
ráðasjóðs.
4. Sérstakur sjóður verði áfram starfandi, er taki við
þessum verkefnum búnaðardeildar.
Tekjuöflun til sjóðsins verði í meginatriðum óbreytt frá
núverandi fyrirkomulagi, þ. e. ákveðið gjald af búvöru-
framleiðslu þeirra búgreina, sem njóta bótaréttar hjá
sjóðnum, og jafnhátt mótframlag ríkissjóðs.
Þá er lagt til, að sjóðurinn veiti eingöngu aðstoð í formi
óafturkræfra framlaga.
Til frekari skýringa á framangreindum tillögum vísast til
álitsgerðar nefndarinnar á þingskjali 61 ásamt fylgiskjölum.
*
Þingskjal 61 ásamt fylgiskjölum cr málið, eins og það var lagt fyrir Búnaðarþing. —
Ritstj.