Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 287
BÚNAÐARl’ING
259
Mál nr. 53
Erindi Jóns Ólafssonar og Sveins Jónssonar varðandi tolla
og söluskatt af fjárfestingarvörum, o. fl.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var
með 25 samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing 1982 samþykkti ályktun, þar sem skorað
var á landbúnaðarráðherra að beita sér fyrir því, að fellt
yrði niður að fullu vörugjald, jöfnunargjald og söluskattur
af vélum og tækjum, sem notuð eru í landbúnaði, og
varahlutum í þau.
Nú hafa verið stigin viss skref að þessu marki og
búvöruverð þegar orðið lægra en ella. Búnaðarþing 1984
ítrekar fyrri áskorun og bendir m. a. á núverandi ósamræmi
á verði nýrra véla annars vegar og varahluta í þær hins
vegar og telur sérstaka ástæðu til afnáms á söluskatti af
viðkomandi varahlutum.
Búnaðarþing vekur einnig sérstaka athygli á, að niður-
felling á söluskatti nær nú aðeins til hluta af vélum og
tækjum til landbúnaðar, og leggur áherzlu á, að þar verði
staðið að fullu við fyrirheit um afnám á söluskatti.
Þá vill Búnaðarþing minna á fyrri ályktanir, þar sem því
hefur verið beint til ráðherra, að hann beiti sér fyrir því, að
uppsafnaður söluskattur af búvöruframleiðslu og búvöru-
vinnslu verði endurgreiddur, svo sem gert er í iðnaði.
Niðurfelling á þeim gjöldum, er um ræðir í þessari
tillögu, mundi vera verulegt framlag til lækkunar á búvöru-
verði og þar með til lækkunar verðbólgu.
Greinargerð:
Flestum, sem landbúnaðarmál, og raunar landsmál, láta
sig varða, telja nauðsynlegt, að hægt sé að lækka raunveru-
legan framleiðslukostnað hinnar svo nefndu hefðbundnu
búvöru. Menn greinir þó á í ýmsu um leiðir að marki, en
þar þurfa framleiðendur vissulega að halda sífelldri vöku
um hagkvæmni.