Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 291
BÚNAÐARÞING
263
mikil ábyrgð fylgir slíkri starfsemi, og er mikilvægt, að vel
takist til.
Með breyttum búskaparháttum hefur fækkað störfum,
sem börn geta hjálpað við, og með aukinni vélvæðingu
hefur slysahætta stóraukizt og þá um leið áhætta þeirra
bænda, sem taka börn til sumardvalar. Það væri líka
ákaflega æskilegt, að í tengslum við ferðaþjónustu bænda
gæti skapazt sú aðstaða, að börn og foreldrar ættu þess kost
að dveljast saman í sveit um lengri eða skemmri tíma á
sumrin.
Mál nr. 56
Erindi stjórnar Búnaðarfélags íslands um milliþinganefnd
til að endurskoða lög um Framleiðnisjóð landbúnaðarins,
Stofnlánadeild landbúnaðarins og jarðræktarlög.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var
með 25 samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing ályktar að kjósa 3 menn í milliþinganefnd
til þess að fjalla um frumvörp til laga um breyting á lögum
um Framleiðnisjóð landbúnaðarins, lögum um
Stofnlánadeild landbúnaðarins og jarðræktarlögum, sem
lögð voru fyrir Búnaðarþing 1983, mál nr. 9,10 og 11, og þá
löggjöf, sem þau snerta.
Nefndin skili áliti fyrir næsta Búnaðarþing.
Greinargerð:
Frumvörp þau, sem hér um ræðir, hlutu ekki efnislega
afgreiðslu á Búnaðarþingi 1983, en stjórn Búnaðarfélags
Islands falið að leita samvinnu við Stéttarsamband bænda
um skipan nefndar til að kanna nánar þær hugmyndir, sem
þessi lagafrumvörp fjalla um, og þá löggjöf, sem þar um
ræðir.
Þessi umfjöllun hefur ekki farið fram með þeim hætti, að
tekin hafi verið efnisleg afstaða til umræddra frumvarpa,
19