Búnaðarrit - 01.01.1984, Side 292
264
BÚNAÐARRIT
heldur lagðar fram greinargerðir til frekari upplýsinga um
þau atriði, sem frumvörpin fjalla um, og fyrri samþykktir
Búnaðarþings, sem tengzt geta þeim efnislega. Enn fremur
greinargerð um stöðu Stofnlánadeildar landbúnaðarins.
Með ályktun þeirri, sem nú er lagt til, að Búnaðarþing
samþykki varðandi greindar lagabreytingar, er ætlazt til, að
milliþinganefnd verði kosin til þess að fjalla um þá laga-
bálka, sem nefnd frumvörp snerta, og skili nefndin áliti um
efnisatriði þeirra fyrir næsta Búnaðarþing.
Mál nr. 57
Erindi Jóseps Rósinkarssonar, Gísla Pálssonar og Sigurjóns
Friðrikssonar um loðdýrarœkt.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var
með 24 samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing beinir því til landbúnaðarráðherra, að hann
beiti sér fyrir því við endurskoðun jarðræktarlaga og
búfjárræktarlaga, að athugað verði, með hvaða hætti væri
árangursríkast að styðja íslenzka loðdýrarækt, svo að hún
verði samkeppnisfær við loðdýrabúskap erlendis.
Jafnframt beinir þingið því til landbúnaðarráðherra, að
hann beiti sér fyrir því nú þegar, að verulegur hluti þess
fjár, sem rennur í Framleiðnisjóð landbúnaðarins á meðan
skerðingarákvæði jarðræktarlaga gilda, verði notaður til
stofnframlaga við loðdýrarækt í landinu við stofnun loð-
dýrabúa, enda verði skilyrði fyrir styrkveitingu, að dregið
verði úr framleiðslu á sauðfjár- eða nautgripaafurðum að
sama skapi. Enn fremur beinir Búnaðarþing því til
Stofnlánadeildar landbúnaðarins, að lán til loðdýrabú-
skapar verði vaxta- og afborgunarlaus fyrstu tvö árin og
lánstími verði lengdur frá því, sem nú er.
Þá skorar þingið á Byggðasjóð að veita nauðsynlegu
fjármagni til fóðurstöðva í loðdýrarækt, og jafnframt leita
stuðnings landbúnaðarráðherra að fylgja málinu eftir.