Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 294
266
BÚNAÐARRIT
Mál nr. 59
Erindi allsherjarnefndar um tilraunastöðvar í landbúnaði.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var
með 25 samhljóða atkvæðum.
Búnaðarþing bendir á þann samdrátt miðað við raun-
gildi, sem orðið hefur á síðustu árum í fjárveitingum til
tilraunastöðva landbúnaðarins, og telur þá staðreynd sízt
auka möguleika á eðlilegri framþróun í þeim atvinnuvegi né
vera til hagsbóta fyrir þjóðina í heild.
Sérstök ástæða er til þess að efla tilraunastarfsemi vegna
grasræktar við erfiðari skilyrði. Þingið telur, að þannig sé
nauðsynlegt að efla þær tilraunir, sem benda nú þegar eða
bent gætu á leiðir til aukinna rauntekjumöguleika án þess
að auka þurfi innlend aðföng og dregið gætu úr kaupum
rekstrarvara af erlendum toga. Sérstaklega er æskilegt, að
þær tilraunir og aðgerðir verði sem raunhæfastar, er stuðlað
gætu að enn fjölbreyttari og betri markaðsvöru á sem
flestum sviðum. Þar ber m. a. að hafa í huga gott hráefni
fyrir íslenzkan ullar- og skinnaiðnað.
Greinargerð:
Framþróun í undirstöðu atvinnugreinum hefur að mörgu
leyti grundvallazt á fjölþættri tilrauna- og rannsóknarstarf-
semi. Séríslenzkar aðstæður veðurfars, jarðvegs, gróðurs,
fóðurs, bústofna o. fl. þátta útheimta stöðugt nýjar tilraun-
ir og nýja þekkingaöflun.
Ólíkar ytri aðstæður í hinum ýmsu landshiutum og
héruðum varðandi ofangreinda þætti hafa einnig knúið á
um, að tilraunir og rannsóknir séu víðtækar og dreifðar um
landið með einhverjum hætti.
Sérstaklega má telja nú, að rannsóknir og tilraunir, er
varða fóður og fóðrun, jarðveg, fræ, hóflega áburðar-
skammta samfara áburðarnýtingu búfjáráburðar o. fl. geti
orðið bændum að leiðarljósi, þegar auka þarf hlut heima-