Búnaðarrit - 01.01.1984, Page 313
LANDBÚN AÐURINN
285
sala smjörva jókst um 14.2%, samanlögð sala á smjöri og
smjörva minnkaði um 14%.
Framleiðsla á ostum varð nokkuð minni en árið áður,
salan innanlands jókst enn eða um 6.5—20% eftir tegund-
um. Utflutningur á ostum varð nokkur, en þó verulega
minni en árið áður.
Loðdýrarœktin. Nú um áramótin voru loðdýrabú í landinu
118, en voru 86 í ársbyrjun 1983. 106 bú eru með refi
eingöngu, 10 bú eru með bæði refi og minka og tvö bú
eingöngu með minka. A árinu áttu 3 948 refalæður 25 338
hvolpa og fengust því 6,4 hvolpar á ásetta læðu.
Minkalæðurnar (6 520) áttu 24 300 hvolpa og fengust því
3,7 hvolpar á ásetta minkalæðu. Frjósemin var því heldur
betri en áður, en getur batnað með heilbrigðari minkastofni
og meiri kunnáttu.
A s. 1. vori voru fluttir inn minkar frá Danmörku, sem
vonandi reynast ósýktir af hinum hvimleiða sjúkdómi og nú
skömmu fyrir áramótin voru fluttir inn refir frá Noregi,
bæði úrvals blárefir, sem vænst er til að bæti stofninn, sem
fyrir er, og silfurrefir, sem ekki voru hér fyrir.
Verð á blárefaskinnum hefur staðið í stað eða heldur
lækkað, en verð á skugga- og silfurrefaskinnunt hefur
hækkað um 20—30% og á minnkaskinnum hefur verðið
hækkað um 10—15% í erlendri mynt.
Hlunnindi. Síðast liðin fjögur ár hefur einn af ráðunautum
Búnaðarfélags íslands leiðbeint um nýtingu hvers konar
hlunninda. Með þessu vill félagið stuðla að því, að ýmsum
hlunnindum, sem áður þóttu rnikils virði, verði nú aftur
meiri gaumur gefinn. Reynt er að stuðla að þessu með
leiðbeiningum, auknum rannsóknum og markaðsöflun.
Töluvert hefur unnist í þessu efni. Á árinu var unnið
markvisst að markaðsöflun fyrir silung og skipulagningu á
dreifingu hans, jafnframt var leiðbeint um meðferð vörunn-