Heilbrigðismál - 01.04.1969, Side 17
Heiðruðu gesdr. Góðir félagar.
Ég vil fyrst færa félagsstjórn þakkir fyrir, að
mér var boðið að koma hingað á þessum merkis-
degi Krabbameinsfélags Reykjavíkur. Félagið hefur
nú starfað í tvo áratugi. Það er ekki langur tími
þegar þess er gætt, hve hlutverkið er erfitr og
markið tortótt. Samt má fullyrða, að félagið hafi
þegar unnið stórvirki á sínu sviði, og munu allir
þeir, sem til þekkja, vera mér sammála um það. Frá
upphafi vega hefur það rækt fjölþætta starfsemi og
stöðugt verið að færa út kvíarnar. Það hefur háð
sína baráttu á mörgum vígstöðvum. Ég skal ekki
rekja störf félagsins í einstökum atriðum, enda hef-
ur það þegar verið ge;t að nokkru, en flyt því að-
eins þakkir mínar fyrir góð afrek í tuttugu ár.
Það orkar ekki tvímælis, að Krabbameinsfélag
Reykjavíkur, elzta félagið og samtökin í heild hafa
reynzt farsæl í starfi til þessa dags. Vafalaust hefur
margt stuðlað að þeirri giftu, en mér kemur nú
einkum þrennt í hug.
Það var vel af stað farið, er Læknafélag Reykja-
víkur ákvað að beita sér fyrir stofnun almennra
Avarp Alfreðs
Gíslasonar lœknis
á afmœlishátíð Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur
samtaka til baráttu gegn krabbameini. Þar fór sam-
an þekking og áhugi. Þetta fiumkvæði læknafélags-
ins er því til sóma og krabbameinsfélaginu hefur
það reynzt traustur grundvöllur.
Tvímælalaust á það einnig sinn þátt í velgengni
félagsins, að því hafa valist dugandi stjórnendur,
- menn innan læknastéttar og utan, - sem hafa
unnið af alúð og ósérplægni. Nöfn þeirra mörgu
ágætu manna ætla ég ekki að þylja hér, en vona,
að ég geri engum rangt til, þótt ég nefni tvo menn,
sem staðið hafa í fylkingarbrjósti, — þá Níels
Dungal, prófesror og Bjarna Bjarnason, lækni.
Loks hefur það að mínum dómi ráðið miklu um
góðan star fsárangur félagsins, hve hæfu starfsliði
það jafnan hefur haft á að skipa. Hin daglega önn
hefur mætt á starfsfólkinu og þar hefur aldrei neitt
bilað, enda störfin einkennzt af þeirri árvekni og
ósérhlífni, sem góðu málefni hæfir.
Ég lýk þessu ávarpi mínu með því að endurtaka
þakkir til ktabbameinsfélags Reykjavíkur fyrir unn-
in störf og með því að árna félaginu gengis og
gæfu í starfi á komandi árum.
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
17