Heilbrigðismál - 01.06.1981, Side 9
LÖG IJM HOLLIISTIIHÆTTI
OG HEILBRIG ÐISEFTIRLIT
meðal nýsamþykktra laga frá Alþingi
Grein eftir
Ingimar Sigurðsson
Á vegum heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins voru lögð
fram alls þrettán lagafrumvörp á
síðasta alþingi og hlutu tólf þeirra
afgreiðslu. Hér verður reynt að
kynna helstu atriði þeirra laga sem
tengjast mest eiginlegum heil-
brigðismálum, en sleppt er fernum
lögum um breyting á lögum um al-
mannatryggingar, tvennum lögum
um breyting á lögum um eftirlaun
til aldraðra svo og nýjum lögum um
atvinnuleysistryggingar.
MEINATÆKNAR. Lög um
meinatœkna, nr. 99/1980. Þessi lög
kveða á um réttindi og skyldur
meinatækna og eru þáttur í þeirri
viðleitni heilbrigðisyfirvalda að
tryggt sé að eingöngu þeir sem hafa
kunnáttu til vissra starfa geti
stundað þau. Samkvæmt lögunum
hefur sá einn rétt til þess að vera
Sett hafa verið iög um starfsréttindi
meinatœkna.
meinatæknir hér á landi, og kalla
sig meinatækni, sem til þess hefur
fengið leyfi heilbrigðisráðherra.
Slík leyfi má aðeins veita þeim sem
lokið hafa prófi frá meinatækna-
deild Tækniskóla íslands eða hlið-
stæðu viðurkenndu námi erlendis.
Einnig er heimilt að veita tak-
markað og/eða tímabundið starfs-
leyfi öðrum sem eru í starfi þegar
lögin öðlast gildi, þótt þeir uppfylli
ekki þau skilyrði sem áður voru
nefnd. Slík leyfi má þó aðeins veita
að fyrir liggi umsögn Meinatækna-
félags íslands, en leyfinu fylgir ekki
réttur til þess að kallast meina-
tæknir.
FÆÐINGARORLOF. Lög um
fœðingarorlof, breyting á lögum um
ahnannatryggingar, nr. 67/1971,
með síðari breytingum, nr. 97/1980.
Hverri konu sem á lögheimili á ís-
landi verða nú tryggðar greiðslur í
fæðingarorlofi, allt að því að vera
fullar viðmiðunargreiðslur í þrjá
mánuði og niður í þriðjung, og fer
hlutfallið eftir atvinnuþátttöku.
Fullar greiðslur nema nú 6.075
nýkr. á mánuði. Það skal undir-
strikað að þær konur sem vinna
heima njóta eins mánaðar orlofs.
Faðir á rétt á fæðingarorlofi í stað
móður, ef hún óskar þess, og má
orlof hans nema allt að einum
mánuði. Fæðingarorlof lengist um
einn mánuð sé urn að ræða fleir-
burafæðingu eða alvarlegan sjúk-
leika barns, sem krefst nánari um-
önnunar foreldris. Ættleiðandi
'foreldri, uppeldis- eða fósturfor-
eldri eiga rétt á tveggja mánaða
greiðslum (samsvarandi fæðingar-
orlofi) vegna töku barns yngra en 5
■ára. Tekið skal frant að opinberir
starfsmenn, bankamenn og aðrir
sem samið hafa um fæðingarorlof
falla ekki undir þessi lög.
HOLLUSTUVERND. Lög um
hollustuhœtti og heilbrigðiseftirlit,
nr. 50/1981. Þetta er ný heildar-
löggjöf sem á að koma í stað laga
frá 1969 með sama heiti. Lög þessi
öðlast gildi 1. ágúst 1982. Hér er um
mjög viðamikinn lagabálk að ræða
og verður sennilega fjallað nánar
um hann í þessu tímariti síðar.
Helstu nýmæli laganna eru eftir-
farandi:
1. Lögin ná yfir alla starfsemi og
framkvæmd sem haft getur í för
með sér mengun lofts, láðs eða
lagar, að svo miklu leyti sem slíkt er
Ekki hafa verið í gildi nein heildarlög
um ytri mengun, en nýju lögin um
hollustuhœtti og heilbrigðiseftirlit
eiga að bæta úr því.
Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 2/1981 9