Heilbrigðismál - 01.06.1981, Page 10
ekki falið öðrum aðilum með öðr-
um lögum eða alþjóðasamþykkt-
um. Ekki hafa verið í gildi nein
heildarlög um svokallaða ytri
mengun, en um innri mengun gilda
nú lög frá 1980 um aðbúnað, holl-
ustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
2. Ekkert sveitarfélag skal vera án
viðhlítandi heilbrigðiseftirlits og
þjónustu heilbrigðisfulltrúa. Heil-
brigðisnefndir verða 47 í stað 224
eins og nú er. Ákvæði um nefnd-
irnar, verksvið þeirra og ýmis
framkvæmdaatriði eru mun ítar-
legri en í eldri lögunum.
3. Sérstökum svæðisnefndum
verður komið á fót, en þær skulu
skipaðar formönnum heilbrigðis-
nefnda á svæðinu.
4. Samkvæmt lögunum er nýrri
stofnun, Hollustuvernd ríkisins,
ætlað að hafa yfirumsjón með
heilbrigðiseftirliti, matvælaeftirliti,
mengun og rannsóknum þessu
tengdu, sjá um framkvæmdina og
vinna að samræmingu. Stofnunin á
að starfa í þremur deildum, ein skal
annast heilbrigðiseftirlit, önnur
rannsóknir og sú þriðja mengunar-
varnir. Með þessu eru sameinaðar
undir einni stofnun Heilbrigðis-
eftirlit ríkisins, Matvælarannsóknir
ríkisins og Geislavarnir ríkisins.
Enn fremur skal stofnunin sjá um
framkvæmd laga um ráðstafanir til
að draga úr tóbaksreykingum.
Eiturefnanefnd, Áfengisvarnaráð
og Manneldisráð eiga að starfa
innan stofnunarinnar og í mjög
nánu samstarfi við hana.
5. I Iögunum eru miklu ítarlegri
ákvæði en áður um valdsvið og
þvingunarúrræði heilbrigðisnefnda
og hvernig þeim skuli beitt.
6. Gert er ráð fyrir því að sveitar-
félög geti sett samþykktir um ein-
staka málaflokka, ef ástæða er til.
EITUREFNI. Lög um breyting á
lögum nr. 85/1968 um eiturefni og
hœttuleg efni, nr. 19/1981. Breytter
14. grein laganna sem fjallar um
skráningu eiturefna og hættulegra
efna til sérstakra nota. Felld eru
undir lögin svonefnd aflífunarefni.
Nýmæli er einnig að skráningar-
skylda er látin taka til hluta lífvera
og örvera, séu þær notaðar sem
plöntulyf, örgresisefni, stýriefni
eða útrýmingarefni. Einnig getur
ráðherra, að fengnum tillögum
eiturefnanefndar, látið ákvæðin ná
til skráningar eiturefna og hættu-
legra efna sem ætluð eru til annarra
nota, svo sem fúavarnarefna, fegr-
unar- og snyrtiefna og lífrænna
leysiefna. Til þessa var gripið vegna
þess að veruleg aukning hefur
orðið á notkun ýmissa efna og
efnasambanda en það kallar á
stóraukið eftirlit. Hafa þegar hlotist
ÍREYKJAVI K )=
Hafnarstræti 5 - Sími 29300
sólbtömaolía
Inniheldur a.m.k. 67%
fjölómettaðar fitusýrur
Sólblómaolía er sérlega góö til steikingar,
baksturs, í mayonnaise, alls konar salöt og
dressinga.
Sólblómaolía fæst í næstu matvöruverslun.
(Esmjörlíki hf.
10 Fréttabrél um HEILBRIGÐISMÁL. 2/1981