Heilbrigðismál - 01.06.1981, Page 26
Leitin að leghálskrabbameini
byggist á skoðun frumusýna. Frá
því fyrstu leitarstöðinni var komið
á fót hefur Krabbameinsfélagið
rekið frumurannsóknastofu í
tengslum við leitarstöðvarnar, en
að sjálfsögðu varð mikil aukning er
Leitarstöð-B hóf starf sitt, því að
leitin byggðist að verulegu leyti á
frumurannsóknum. Áður styrkti
Krabbameinsfélag Islands rann-
sóknarfólk til að sækja menntun
sína og starfsþjálfun til annarra
landa fyrst en á því hefur orðið sú
breyting að kennslan fer fram hér.
Á síðustu árum hefur rannsókna-
stofan í auknum mæli tekið við
frumusýnum úröðrum líffærum en
leghálsi, og er nú svo komið að
þetta er eina frumurannsóknastof-
an sem starfrækt er hér á landi. Er
mikilvægt að rekstur hennar verði
tryggður áfram og könnuð frekari
not þessarar rannsóknaraðferðar
við leit að krabbameini.
Krahbameinsskráin vinnur, eins
og nafnið bendir til, að skráningu
krabbameina og hefur haldið ná-
kvæmar skrár yfir fjölda meina
síðasta aldarfjórðunginn. Úr-
vinnsla þessara upplýsinga og ann-
að rannsóknastarf hefur þó sífellt
verið að aukast og eru þegar farnar
að birtast athyglisverðar niður-
stöður slíkra rannsókna í þekktum
erlendum fræðiritum. Eins og
kunnugt er býður landið okkar upp
á ýmsa möguleika á þessu sviði sem
erlendar vísindastofnanir kunna
vel að meta.
Hér hefur verið minnst á þrjá
stærstu þættina í starfi Krabba-
meinsfélags Islands, þ. e. leitar-
starf, frumurannsóknir og krabba-
meinsskráningu. En við gerum
meira.
Varðandi krabbameinslækningar
má geta þess að félagið vann á sín-
um tíma að því að keypt voru til
landsins almenn geislalækninga-
tæki, en síðar kobolt tæki, sem
reynst hafa hornsteinn í geisla-
meðferð við krabbameini hérlend-
is. Við munum stuðla eftir mætti að
frekari uppbyggingu krabbameins-
lækninga á Landspítalanum.
Ekki má gleyma þeim þætti sem
margir telja að muni, þegar tímar
líða, öðlast meiri sess heldur en nú,
en það er heilbrigðisfræðslan.
Krabbameinsfélag Islands hefur á
eigin spýtur tekið að sér slíkt hlut-
verk í formi vandaðs tímarits fyrir
almenning „Fréttabréfs um heil-
brigðismál", sem nýtur síaukinna
vinsælda. Þar er fjallað um
krabbamein en einnig önnur svið
heilbrigðismála. Krabbameinsfé-
lag Reykjavíkur hefur hins vegar á
hendi útgáfu fræðslurita um
krabbamein og sér auk þess um
fræðslu í skólum landsins um
krabbamein. Mikil áhersla hefur
verið lögð á fræðslu um skaðsemi
reykinga. Það starf hefur borið ár-
angur sem eftir hefur verið tekið.
Reykjavíkurfélagið hefur einnig
með höndum rekstur Happdrættis
Krabbameinsfélagsins sem sífellt
hefur verið að eflast þá rúma tvo
áratugi sem því hefur verið haldið
úti.
Á þeim vettvangi er farið að nota
nýtt slagorð samtakanna sem
hljóðar svo: „Stuðningur ykkar er
okkar vopn“. Þessi meitlaða setn-
ing minnir á það að ef við fáum
stuðning þjóðar og þings munum
við geta beitt þeim vopnum sem
tiltæk eru í baráttunni við krabba-
meinið. Á hvern hátt við getum
barist mun koma betur í ljós á
næstunni.
Dr. Gwmlaugur Snœdal er yfirlæknir
á Kvennadeild Landspitalans. Hann var
formaður Krabbameinsféiags Reykja-
víkur frá 1966 til 1979 er Itann var kosinn
formaður Krabbameinsfélags íslands.
24. desember
,^&°^E,NSVElAOSWS
1951 - 27. JÚNÍ -1981
26 Frétlabréf um HEILBRIGÐISMAL 2/1981