Heilbrigðismál - 01.06.1981, Qupperneq 28
Mynd: Jóhannes Long
¥
KRABBAMEIXSFÉLAG ÍSLAXDS 30ARA
Þátttakendur í pallhorðsumrœðum,
ásamt stjórnanda. Talið frá vinstri:
Davíð Oddsson horgarfulltrúi og
forstjóri Sjúkrasamlags Reykjavík-
ur; Davíð Á. Gunnarsson forstjóri
Ríkisspítalanna; Adda tíára Sigfús-
dóttir horgarfulltrúi; Stefán Jónsson
alþingismaður og formaður Trygg-
ingaráðs; Sigmar B. Hauksson
stjómandi umræðnanna; Sigurður
Björnsson lœknir, ritari stjórnar
Krahhameinsfélags íslands; Hjörtur
Hjartarson forstjóri, gjaldkeri
stjórnar Krahhameinsfélags íslands;
Guðmundur Jóhannesson yfirlæknir
leitarstöð var Krahhameinsfélagsins;
Gunnlaugur B. Geirsson yfirlæknir
frumurannsóknastofu Krahhameins-
félagsins.
krabbameins og þeirra sem fengið
hefðu sjúkdóminn. Hann ræddi
einnig um hin víðtæku verkefni
Krabbameinsfélagsins og kvað það
skyldu heilbrigðisyfirvalda að
styðja starf félagsins eftir mætti.
Að hátíðarfundinum loknum
voru pallborðsumræður um verk-
efni Krabbameinsfélagsins í nútíð
og framtíð. Þátttakendur voru átta,
bæði frá félaginu og opinberum
aðilum (sjá myndatexta).
Á aðalfundi Krabbameinsfélags
íslands, sem haldinn var að morgni
15. maí (á undan hátíðarfundinum)
kom fram að starfsemin síðasta ár
var með svipuðu sniði og áður. Sú
breyting varð á stjórn félagsins að
Baldvin Tryggvason sparisjóðs-
stjóri var kosinn í stað dr. Friðriks
Einarssonar yfirlæknis sem gaf
ekki kost á sér, en hann hafði verið í
stjórn síðan 1954. Aðalfundurinn
samþykkti þá ályktun sem hér fer á
eftir. -jr.
ÁLYKTUN
Aðalfundur Krabbameinsfélags ís-
lands 1981 minnir á að mikið skortir á
að viðunandi aðstaða sé til krabba-
meinslækninga í landinu. Nýlega var
tekin í notkun göngudeild fyrir lyfja-
meðferð og eftirlit í húsnæði kvenna-
deildar Landspítalans og hefur aðstaða
til þeirrar starfsemi batnað verulega. Þá
ber að fagna því að ákveðin hafa verið
kaup á tölvustýrðum sneiðmyndatækj-
um, en slík tæki hafa valdið straum-
hvörfum í greiningu krabbameins og
mati á árangri meðferðar.
Aðalfundurinn leggur áherslu á að án
tafar verði hafist handa um eftirtalin
verkefni:
1. Stofnuð verði sérstök deild í
krabbameinslækningum er hafi yfir
að ráða a. m. k. 20 sjúkrarúmum
fyrir sjúklinga í sérhæfðri krabba-
meinsmeðferð.
2. Gengið verði frá kaupum á
„simulator" sem er ómissandi tæki
við undirbúning geislameðferðar og
tryggir nákvæmni og öryggi slíkrar
meðferðar.
3. Ekki verði lengur dregið að endur-
nýja geislatæki í landinu. 1 því skyni
er nauðsynlegt að fá hingað línu-
hraðara, en með þeirri tækni verður
meðferð margra krabbameina
beinskeittari og jafnframt hættu-
minni. Má með því komast hjá að
senda fjölmarga sjúklinga utan til
geislunar á ári hverju.
Aðalfundurinn beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til ráðamanna að
þegar verði hafist handa við fyrir-
hugaðar byggingaframkvæmdir á
Landspítalalóð til að unnt verði að
setja niður ofangreind tæki og taka
þau í notkun.
Loks minnir aðalfundurinn á að Is-
land er vel fallið til grunnrannsókna á
eðli og uppruna krabbameina og
nauðsynlegt er að efla slíkar rannsóknir
jafnframt því sem aðstaða til meðferðar
er bætt. Heitir stjórnin því að stuðla að
því að svo megi verða, enda er það í
samræmi við stefnuskrá félagsins. □
Afmæliskveðja
frá íslenska
b in din dis félagin u
Þið, sem læknið mannlífs mein,
mörgum svölun finnið.
Sú er óskin æðst og ein,
að þið sigur vínnið.
Tímamótum merkum á
margt er gott til ráða.
Aðra tigna tugi þrjá
teflið horsk til dáða.
Blessun guðs og gæfa
fylgi öllum störfum ykkar.
Jón Hj. Jónsson.
1951 - 27. JIJXÍ -1981
28 Fróttabróf um HEILBRIGÐISMÁL 2/1981