Heilbrigðismál - 01.09.1981, Blaðsíða 33
KRABBAMEINSFÉLAG ÍSLAADS 30ÁRA
L
skylda okkar, sem höfum það starf
að vaka yfir heilbrigði og líkam-
iegri og andlegri velferð samborg-
aranna, að styðja starf þeirra eftir
mætti.
Verkefni það sem krabbameins-
félögin hafa valið sér er afar víð-
tækt. Eftir því sem þekking manna
á uppruna krabbameinsins hefur
vaxið hefur félagið staðið í farar-
broddi um hvers konar aðgerðir til
að fyrirbyggja sjúkdóminn. Á þvi
sviði er nú unnið þróttmikið starf,
sem felst m. a. í víðtækri fræðslu
um eðli sjúkdómsins, aðgerðum til
að forðast lifnaðarhætti sem vitað
er að geti leitt til krabbameins-
myndunar, svo sem reykingar, haft
er vakandi auga með margvísleg-
um krabbameinsvaldandi efnum
og bent á hættur sem eru samfara
umgengni við slík efni eða notkun
þeirra. Slíkt varnarstarf, sem bein-
ist að frumatriðum heilsuverndar, á
oft erfitt uppdráttar og fjármunir til
slíks liggja ekki á lausu hjá hinu
opinbera. Þungamiðjan í starfsemi
krabbameinsfélaganna hefur um
Séðyfir fumiarsalinn á hátíðarfundi i
tilefni af þrjátíu ára afmœli Krabha-
meinsfélags Islands.
Gjörbreytt afstaöa
til krabbameins
Ávarp Skúla G. Johnsen horgarlœknis
á afmœ/isfundi Krabbameinsfélags íslands
sem haldinn var í Donms Medica 15. maí 1981
Það eru ekki liðnir nema fáeinir
áratugir frá þeim tíma er læknavís-
indin stóðu að mestu ráðþrota
gagnvart einni algengustu dánar-
orsök samtímans, krabbameininu.
Fyrir þrjátíu til fjörutíu árum náði
þekking manna á þessum skaðvaldi
svo skammt að með engu móti varð
séð, að nokkra þýðingu hefði að
skipuleggja aðgerðir eða hefja átak
í baráttunni gegn honum.
Hins vegar er þeirri hamingju að
fagna, að meðál okkar finnast ein-
staklingar sem öðlast hafa trú og
baráttuhug og eru tilbúnir til að
leggja allt í sölurnar fyrir framgang
málefnis, sem að dómi flestra virtist
vonlaust og óyfirstíganlegt. Ekki er
ofsagt að einmitt þessi baráttuhug-
ur tendraði hug þeirra manna sem
stóðu að stofnun Krabbameinsfé-
lags íslands fyrir 30 árum.
Þá var næstum hver sá sjúklingur
sem fékk þennan illkynjaða sjúk-
dóm talinn dauðadæmdur og hans
beið oftast ekki annað en dauða-
stríðið. Það þurfti því kjark til að
rísa upp til baráttu gegn slíkum
meinvætti, kjark sem einungis fá-
unt mönnum er gefinn.
Þegar upphafsmenn baráttunnar
gegn krabbameini á íslandi höfðu
vísað veginn kom strax í ljós að
fjölda margir voru tilbúnir til að
leggja lið sitt í þágu málefnisins.
Fyrstu árin unnu forystumenn
Krabbameinsfélagsins ósleitilega
að framgangi félagsins, þeir hófu
útgáfu tímarits, skrifuðu greinar í
blöð, efndu til fræðslufunda, ferð-
uðust unt landið og hvöttu til
stofnunar félagsdeilda í öllum
landshlutum. Á þennan hátt varð
baráttan gegn krabbameininu
smám saman að fjöldahreyfingu,
sem var þess megnug að gefa
landsmönnum trú á að fólkið væri
ekki lengur selt undir óumflýjanleg
örlög þegar krabbamein er annars
vegar. Ég vil nota þetta tækifæri til
að votta minningu þeirra manna,
sem hófu merki þessa félags, mína
dýpstu lotningu. Nöfn þeirra munu
ekki gleymast og megi þeir verða
okkur ævarandi fordæmi um,
hverju hugsjónir einstaklinga og
óbilandi baráttuþrek færáorkað.
Krabbameinsfélag íslands er
ennþá vettvangur einstaklinga sem
eiga sér háleita hugsjón og það er
!
I
1951 - 27. JIJNI 1981
Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 3/1981 33