Heilbrigðismál - 01.09.1985, Qupperneq 27
óhúðaðar töflur og mixtúru. Mis-
litun er þó lítil við góða tannhirðu.
Járnsölt geta breytt lit, lykt og útliti
hægða.
Enda þó að járn sé lífsnauðsynlegt
í litlu magni, eru stórir skammtar
hættulegir. Hjá fullorðnum valda
þeir oftast einungis óþægindum, en
hjá börnum getur mikið magn af
járni valdið alvarlegri eitrun og er
banvænn skammtur af járni við inn-
töku einungis 2—4 grömm eða jafn-
vel minni. Þarf því að gæta þess vel
að geyma járntöflur þar sem að
tryggt er að börn nái ekki í þær.
Þórdís Kristmundsdóttir, Ph. D., er
lyfjafræðingur og starfar að rann-
sóknum og kennslu í lyfjafræði lyf-
sala, Háskóla íslands.
Þorkell Jóhannesson, dr. med., er
prófessor í lyfjafræði við læknadeild
Háskóla íslands og forstöðumaður
Rannsókastofu í lyfjafræði.
Grein þessi er unnin í samvinnu
við stjórnamefnd Reykjavíkurapó-
teks.
JÁRN TIL LÆKNINGA: LYF TIL INNTÖKU
Heiti lyfs Lyfseðilsskylt Lyfjaform Virkt járnsamband Magn ferrójáms
Duroferon duretter Nei Forðatöflur Ferrósúlfat Samsvarandi 100 mg af ferrójámi í töflu
Ferromyn S Nei Mixtúra Ferrósúkkínat Samsvarandi 3,7 mg af ferrójámi í ml
Ferróplex Nei Töflur Ferrótartrat Samsvarar 56 mg af ferrójámi í töflu
Ferróplex-frangúla Nei Töflur Ferrótartrat, inniheldur einnig 5 mg af frangúla- extrakt í töflu Samsvarar 56 mg af ferrójámi í töflu
Jámglúkonat Nei Töflur Ferróglúkónat Samsvarar 35 mg af ferrójámi í töflu, en einnig em skráðar töflur sem innihalda sem samsvarar 23 mg af jámi
Jámtartrat Nei Töflur Ferrótartrat Samsvarar 56 mg af ferrójámi
Jámtartrat frangúla Nei Töflur Ferrótartrat, inniheldur einnig 5 mg af frangúla- extrakt í töflu Samsvarar 56 mg af ferrójámi
JÁRN TIL LÆKNINGA: STUNGULYF
Heiti lyfs Lyfseðilsskylt Lyfjaform Virkt járnsamband Magn ferríjáms
Imferon Já Stungulyf Ferrídextran- komplex Samsvarar 50 mg af jámi í ml
Jectofer Já Stungulyf Ferrísorbítól- sítrónsýrukomplex Samsvarar 50 mg af jámi í ml
Miðaö er viö öll skráö sérlyf 1. janúar 1985.
HEILBRIGÐISMÁL 3/1985 2 7