Heilbrigðismál - 01.03.1986, Blaðsíða 10
þeirra sem ekki reykja verður að
aukast, nú þegar hættan af
óbeinum reykingum hefur orðið
Ijós. Kvennasamtök verða að vakna
og sjá þennan skaðvald í réttu ljósi,
ósið sem veldur konum, börnum
þeirra, fjölskyldum og vinnufé-
lögum óþægindum, sjúkdómum
og mörgum þeirra dauða um aldur
fram, verði ekkert að gert.
ítarefni:
The health consequences of smoking for
women. A report of the Surgeon General.
1983. U.S. Dep. of HHS.
Bobby Jacobsson: The Ladykillers - Why
smoking is a feminist issue. Pluto Press
1981.
The World Cigarette Pandemic. Part II.
New York State Journal of Medicine.
1985,85,(7).
Sveinn Magnússon læknir er sér-
fræðingur í heimilislækningum og
starfar á Heilsugæslunni í Garða-
bæ. Hann er í stjórn Læknafélags
Islands og formaður samtakanna
RÍS 2000 (Reyklaust ísland árið
2000).
Breytíngar
á ritstjórn
Um síðustu áramót lét dr. Ólaf-
ur Bjarnason prófessor af störf-
um sem ritstjóri og ábyrgðarmaður
Heilbrigðismála, að eigin ósk. Ólaf-
ur tók við ritstjórn tímaritsins árið
1976 og gegndi þessu starfi því í tíu
ár. Ólafi er þakkað óeigingjarnt
starf að málefnum Krabbameinsfé-
lagsins allt frá stofnun þess. Jafn-
framt er fráfarandi ritnefnd þakkað
framlag hennar til ritsins.
Jónas Ragnarsson, sem starf-
að hefur við útgáfu tímaritsins síð-
an 1976, þar af sem ritstjóri síðan
1982, verður áfram ritstjóri Heil-
brigðismála.
Jónas Hallgrímsson prófessor
tekur nú við sem ábyrgðarmaður
Heilbrigðismála og mun einnig
bera ábyrgð á öðru efni sem
Krabbameinsfélag Islands gefur út.
Síðasta áratuginn hefur tímaritið
Heilbrigðismál tekið stakka-
skiptum, áskrifendafjöldinn hefur
tvöfaldast og farið er að prenta
blaðið að miklu leyti í lit. Þess er að
vænta að fyrir lok þessa árs verði
blaðið allt litprentað. Hér eftir sem
hingað til verður fjallað um flest
svið heilbrigðismála í þessu tíma-
riti.
Framkvæmdastjórn
Krabbameinsfélags Islands.
Frϗslunt
ns
Þessi rit eiga aö liggja frammi á öllum
heilsugæslustöövum en fást einnig
á skrifstofu Krabbameinsfélagsins
að Skógarhlíö 8 í Reykjavík.
VINNINGSNÚMER
í Happdrætti
Krabbameinsfélagsins
■ DREGIÐ 24. DESEMBER 1985 ■
AUDI 100: 149610
TOYOTA COROLLA 1300: 40283 123687
BIFRHIÐAR Á KR. 350.000 : 82798 159458
VÖRUVINNINGAR Á KR. 50.000:
3998 41849 69174 84765 120648 135821 157796 170744
4858 45189 70735 88436 128094 139674 159758 173891
8067 53655 72822 90036 128193 142465 166066 180587
13590 56845 74178 95795 128906 148636 168613 180737
17187 58978 80902 101746 131301 154340 168864 181928
Handhafar vinningsmiöa framvísi þeim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins
aö Skógarhlíö B, sími 62 14 14.
Krabbameinsfélagið
þakkar landsmönnum
veittan stuöning.
é
C- Krabbameinsfélagið
S
Ólafur Bjarnason
(til hægri), Jón-
as Ragnarsson
(neðst til vinstri)
og Jónas Hall-
grímsson (neðst
til hægri).
10 HEILBRIGÐISMÁL 1/1986