Heilbrigðismál - 01.09.1988, Side 31
HEILSUVERNDARSTÖÐIN / Helgi Guðbergsson - HEILSUVERNDARSTÖÐIN / Ljósmyr
Hanskar og exem
Grein eftir Helga Guðbergsson
Mikil notkun kemískra efna er
eitt af því sem einkennir lífshætti
manna nú. Þau koma oft í snert-
ingu við húð, einkum á höndum.
Ýmis rök hníga að því að hindra
beri slíka snertingu. í fyrsta lagi
geta efnin valdið beinum skaða á
húðinni. í öðru lagi geta mörg
þeirra síast eða frásogast frá snerti-
stað í gegnum húðina inn í blóðrás
og þannig haft áhrif fjarri upptöku-
staðnum. Slík áhrif geta verið það
lítil að þeirra verði ekki vart eða
svo mikil að bráð eituráhrif komi
fram. í sumum tilvikum geta áhrif-
in komið fram löngu síðar, t.d.
þegar efnin eru krabbameinsvald-
andi. Sem betur fer er húðin góð
vörn gegn mörgum utanaðkom-
andi áreitum og þolir býsna mikið
álag. Menn eru þó misjafnlega af
guði gerðir í þessu eins og öðru.
Ráða erfðir þar miklu. Vegna
efnaálags getur orðið bilun í húð
og komið fram bólga, exem. Þetta
gerist oft á höndum. Ef exem er
Þessi kona hefur ofnæmi fyrir
hönskum. Útbrotin eru greinilega
á því svæði sem hanskarnir þekja.
annars staðar á líkamanum er al-
gengara að það eigi sér aðrar or-
sakir en beina snertingu við efni.
Reynt er að hindra óæskileg áhrif
með því að nota vettlinga og
hanska.
Viðleitni til að hindra smit er
önnur mikilvæg ástæða hanska-
notkunar. í heilbrigðisþjónustu
notar fólk hanska bæði til að koma
í veg fyrir að smitast og til að bera
ekki sýkla í sjúklinga. Hanskanotk-
un hefur aukist verulega í heil-
brigðisþjónustunni eftir að eyðni
kom til sögunnar enda þótt eyðni-
veiran berist ekki í gegn um heil-
brigða húð. í matvælaiðnaði og við
meðferð matvæla þarf að hindra
örverusmit, enda getur t.d. gerla-
mengun matvæla bæði rýrt gæði
þeirra og valdið sýkingum. Af
sömu ástæðum eru efni sem
hindra vöxt örvera og tortíma þeim
mikið notuð í báðum þessum
starfsgreinum.
Snertiexem
Exem á höndum er oftast snerti-
exem og á sér aðallega tvær orsak-
ir: ertingu eða ofnæmi.
Mörg efni erta húð við snert-
ingu. Glerull er þekkt dæmi. Við
nógu mikið álag, langvarandi eða
títt, geta flest efni valdið ertingu,
þar á meðal vatn og sápa. Notkun
vatnslausna ýmissa þvotta- og
hreinsiefna er reyndar algengasta
orsök snertiexems á höndum.
Næst algengasta ástæðan er notk-
un lífrænna leysiefna, þar á meðal
eru bensín, olía, terpentína og
önnur leysiefni sem notuð eru í
olíumálningu (þynnir), spritt, aset-
ón o.fl. Oftast er urn að ræða end-
urtekna beina snertingu við efnin
fremur en skamma snertingu með
lengra millibili. Ertingin byggist á
því að ystu lög húðarinnar leysast
upp, fyrst örþunnt fitulag, síðan
hornlagið og lipíðar í frumuhimn-
um. Þetta kemur af stað bólguvið-
brögðum í húðinni. Á útlendum
málum er það kallað „kontakt
dermatítis" (dregið af dermis sem
þýðir húð og -ítis sem táknar
bólgu). Latneska heitið á sjúk-
dómnum er eczema. Fólk virðist
Húðpróf. Með einfaldri rannsókn
er oft hægt að greina orsakir ex-
ems á höndum.
HEILBRIGÐISMÁL 3/1988 31