Heilbrigðismál - 01.06.1996, Qupperneq 4
Tómas Jór
Innlent
Áhrif kjarn-
orkutilrauna?
I fræðsluriti um
krabbamein í skjaldkirtli,
sem nýlega er komið út
hjá Krabbameinsfélaginu,
er línurit sem sýnir að
tíðni sjúkdómsins meðal
kvenna hér á landi jókst
mikið upp úr 1960 en
minnkaði aftur um 1980.
Höfundur fræðsluritsins,
Jón Hrafnkelsson krabba-
meinslæknir, segir að
hugsanlega megi skýra
þetta með áhrifum frá
kjarnorkutilraunum Sov-
étmanna á eyjunni No-
vaja Semlja í Norður-
Ishafi, þó aðrar skýringar
komi einnig til greina. I
kjölfar sprenginganna
mældist aukin geislun
hér á landi.
Eftir kjarnorkuslysið í
Chernobyl jókst tíðni
krabbameins í skjaldkirtli
í nágrenni kjarnorkuvers-
ins, einkum hjá börnum.
Er það rakið til geisla-
virks joðs sem myndaðist
við slysið og safnaðist
fyrir í skjaldkirtli.
Er ekki líklegt að aug-
lýsingaskilti dragi at-
hygli ökumanna frá
hættunum í umferðinni?
Varla fengjust svo marg-
ir til að auglýsa á skilt-
unum ef enginn liti á
þau. Nú hefur borgar-
stjórn Reykjavíkur sett
þrengri skorður en áður
giltu um uppsetningu
skilta. Meðal annars er
ákveðið að þau skuli
vera að minnsta kosti 20
metra frá götum. Ef til
vill má draga úr truflun-
inni með þessu móti.
Minni tjara
í tóbaksreyk
Allar 36 sígarettuteg-
undirnar sem Afengis-
og tóbaksverslun ríkisins
selur uppfylla nú skilyrði
Evrópusambandsins um
að tjara í meginreyk
hverrar sígarettu sé ekki
meiri en 15 milligrömm.
Þetta hámark átti að
gilda á öllu Evrópska
efnahagssvæðinu frá árs-
lokum 1992 en fram á
þetta ár hafa hér verið til
sölu sígarettur með allt
að 22 milligrömmum af
tjöru. í árslok 1997 verða
tjörumörkin lækkuð í 12
milligrömm.
í helmingi tegunda eru
nú 13-15 milligrömm af
tjöru, í fjórðungi eru 10-
12 milligrömm og í fjórð-
ungi eru 5-9 milligrömm.
Vegið meðaltal tjöru í
sígarettum á íslenskum
markaði er nú um 13
milligrömm, í fyrra var
það 15 milligrömm, um
20 milligrömm fyrir tutt-
ugu árum og sennilega
um 40 milligrömm fyrir
fjörutíu árum. Sést á
þessu hve breytingin hef-
ur verið mikil. Svo má
deila um kosti þess að
reykja tjörulitlar sígarett-
ur í stað tjörumikilla.
Þorsteinn Blöndal
læknir segir líklegt að
minni tjara leiði til minni
hættu á lungnakrabba-
meini. Hætta á lungna-
þembu og hjartasjúk-
dómum sé þó óbreytt.
Það er því viss ávinn-
ingur af því að skipta í
Iéttari sígarettur, að því
tilskyldu að reykingarnar
séu ekki auknar frá því
sem áður var. Hins vegar
er lang mesti ávinn-
ingurinn fólginn í því að
hætta að reykja, eins og
allir ættu að vita.
Skjaldkirtilskrabbamein
Árlegt nýgengi af 100.000
-59 -64 -69 -74 -79 -84 -89 -94
Fáir með berkla
Af þeim rúmlega tólf
hundruð sjúklingum sem
dvöldu á sjúkrahúsinu að
Reykjalundi árið 1995
komu aðeins tæp 2%
þangað vegna berklaveiki
eða afleiðinga hennar.
Algengasta ástæðan var
gigt (24%) en síðan
hjarta-og æðasjúkdómar
(21%) og taugasjúkdómar
(14%). Þetta kemur fram í
SÍBS-fréttum.
Nú er hálf öld síðan
vinnuheimilið að Reykja-
lundi var stofnað, til end-
urhæfingar fyrir berkla-
sjúklinga.
Götuhlaup njóta al-
mennra vinsælda eins
og undanfarin ár. Að
sögn Sigurðar P. Sig-
mundssonar Ianghlaup-
ara má gera ráð fyrir að
tuttugu til þrjátíu þús-
und manns hafi tekið
þátt í skipulögðum al-
menningshlaupum í
sumar. Myndin var tekin
þegar áhugasamir áhorf-
endur biðu eftir því að
hlauparar í Reykja-
víkurmaraþoninu kæmu
í mark.
4 HEILBRIGÐISMÁL 2/1996
Lmí .. f