Heilbrigðismál - 01.06.1996, Blaðsíða 10

Heilbrigðismál - 01.06.1996, Blaðsíða 10
í réttu ljósi? Á sama tíma og þynning óson- lagsins veldur því að meira en áður berst til jarðar af útfjólubláum geislum sólar bætum við gráu ofan á svart með því að bjóða fólki út- fjólubláa geisla að vild í svonefnd- um ljósabekkjum. Þrátt fyrir sífellt meiri upplýsing- ar um skaðsemi óhóflegra sólbaða, ekki síst í ljósabekkjum, hefur sól- baðsstofum í Reykjavík fjölgað á síðustu árum, samkvæmt upplýs- ingum frá Heilbrigðiseftirlitinu. Nú er hægt að fara í ljós á meira en tuttugu stöðum. Jafnvel eru boðnir ókeypis ljósatímar sem verðlaun fyrir þá sem kaupa sér tíma í heilsurækt. Sérstakur afsláttur er veittur þeim sem kaupa marga tíma með stuttu millibili og farið er að leigja bekki á vildarkjörum til notkunar í heimahúsum. Jón Hjaltaiín Ólafsson læknir benti á það í grein í Heilbrigðismál- um fyrir nokkrum árum að þeir sem liggja í ljósabekkjum í tuttugu mínútur fái álíka mikið af útfjólu- bláum geislum og þeir sem liggja í sólbaði við Dauðahafið í fjórar klukkustundir um miðjan dag, þeg- ar sólin er sterkust. Á síðasta ári var í Heilbrigðis- málum sagt frá sænskri rannsókn sem sýnir að fólk sem er undir þrí- tugsaidri og fer í ljósalampa oftar en tíu sinnum á ári sé í sjö sinnum meiri hættu en aðrir á að fá sortu- æxli, hættulegustu tegund krabba- meins í húð. Þessar niðurstöður þóttu svo athyglisverðar að Banda- ríska læknafélagið hefur mælst til þess að fólki verði bannað að fara í ljós, nema að læknisráði. í síðasta hefti Heilbrigðismála var fræðsluefni frá Geislavörnum ríkisins um ljósabekki. Þar segir: „Ljósabekkir geta verið hættulegir, engu síður en sólin. Börn eiga því ekki að nota ljósabekki. Allir sem hafa ljósa og viðkvæma húð, sem brennur gjarnan í sól, eru ljóshærð- ir eða rauðhærðir, eða eru með marga fæðingarbletti, ættu að forð- ast ljósböð. Þeir sem á annað borð kjósa að nota ljósabekki ættu ekki að fara oftar í þá en tíu til fimmtán sinnum á ári." Félag íslenskra húðlækna varaði í vor við því að of sterkar perur í ljósabekkjum gætu valdið alvarleg- um brunasárum. í kjölfar þess var ákveðið að herða eftirlit með sól- baðsstofum. Eins og kunnugt er hefur tíðni húðkrabbameins aukist síðustu áratugi og er það rakið til aukinna sólbaða og notkunar ljósabekkja. Ár hvert eru greind meira en fjöru- tíu ný tilfelli af húðkrabbameini hér á landi. Meðaltai áranna 1991-95 er 20 sortuæxli og 27 önnur krabba- mein í húð. Mikilvægt er að fara til læknis ef fram koma breytingar á húð eins og blettir sem stækka, eru óreglulega litir eða breytast, og sár sem ekki gróa. Þegar ljósabekkir voru að koma á markaðinn fyrir rúmum áratug brugðust heilbrigðisyfirvöld við og settu skýrar reglur um búnað þeirra og gáfu leiðbeiningar um notkun. Nú virðist tímabært að endurskoða reglurnar en einnig skortir á fræðslu. Efna ætti til átaks til að fræða um húðkrabbamein og áhættuþætti þess. Eðlilegt er að þar standi sam- an Landlæknisembættið, Geisla- varnir ríkisins, Félag íslenskra húð- lækna og Krabbameinsfélagið. Einnig þarf, í samráði við ferða- skrifstofur, að kynna sólarlandaför- um hvernig best er að verjast sól- bruna. Víða erlendis er mikil áhersla lögð á notkun sólarolíu með tilteknum verndunarþætti en hér á landi er ekki vakin nægileg athygli á því. Eins og segir í áðurnefndri grein úr síðasta hefti Heilbrigðismála er ekki ástæða til að amast við því að fólk láti geisla sólar leika um sig, ef það er gert innan skynsamlegra marka en fátt eða ekkert mælir með því að nota Ijósabekki í þeim til- gangi að „líta betur út". Það er staðreynd að of mikið af útfjólublá- um geislum hefur slæm áhrif á húðina, hún verður þykk og skorp- in og hætta á húðkrabbameini eykst. Það er einnig staðreynd að á síðustu þrjátíu árum hefur fjöldi nýrra tilfella af húðkrabbameini fimmfaldast, sem er svipuð aukn- ing eins og hefur orðið á lungna- krabbameini á sama tíma! Gerum við allt sem hægt er til að sporna gegn þessari þróun? Jónas Ragnnrsson, ritstjóri. 10 HEILBRIGÐISMÁL 2/1996

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.