Heilbrigðismál - 01.06.1996, Blaðsíða 31
Sigurður Stefán Jónsson - Jóhannes Long
Fjölþætt starfsemi
Krabbameinsfélagsins
Starfsemi Krabbameinsfélags Islands er mjög fjöl-
þætt. Leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum er um-
fangsmesta verkefni félagsins. Síðan 1964 hefur farið
fram skipuleg leit að leghálskrabbameini á vegum Leit-
arstöSvarinnar og að brjóstakrabbameini síðan 1973.
Mikil breyting varð á þeirri leit þegar Röntgendeild var
komið á fót árið 1985. Sýni úr leghálsslímhúð eru skoð-
uð í Frumurannsóknastofu og skráning og úrvinnsla
gagna fer fram í Tólvudeild og Tólvinnustofu. Samkvæmt
samningi sem gerður var við heilbrigðisyfirvöld árið
1987 tók félagið að sér skipulag og framkvæmd krabba-
meinsleitar, sem nær til kvenna á aldrinum frá tvítugu
til sjötugs. Allar konur á þessum aldri eru boðaðar til
skoðunar annað hvert ár.
Skráning krabbameina hófst árið 1954 á vegum
Krabbameinsskrárinnar. Safnað er upplýsingum um alla
sem greindir eru með krabbamein. Urvinnsla gagna
miðar að því að afla þekkingar á orsökum og eðli
krabbameins. I tengslum við skrána er unnið að rann-
sóknum á fjölskyldufylgni (ættgengi) krabbameins.
Rannsóknastofa í sameinda- og frumulíffræði, sem kom-
ið var á fót í kjölfar Þjóðarátaksins 1986, fæst við svo-
nefndar grunnrannsóknir á krabbameini. Ahersla er
einkum lögð á rannsóknir á að brjóstakrabbameini og
hafa niðurstöður vakið athygli.
Á vegum Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins er lesið
úr 29 þúsund leghálssýnum á ári og teknar myndir af
brjóstum nær 14 þúsund kvenna.
Fræðsla og útgáfa eru stór þáttur í forvarnastarfi
krabbameinssamtakanna. Félagið gefur út tímaritið
Heilbrigðismál, sem fjallar um þennan málaflokk með
sérstakri áherslu á krabbamein, Bókasafn er opið fyrir
lærða sem leika og hjá Krabbameinsráðgjöfinni er svarað
í síma 800 4040 kl. 15-17 virka daga og veittar upplýs-
ingar, gefin ráð og veittur félagslegur stuðningur.
Stuðningur við sjúklinga er eitt af forgangsverkefn-
um Krabbameinsfélagsins. Innan vébanda félagsins
starfa fimm stuðningshópar krabbameinssjúklinga.
Síðan 1986 hefur félagið rekið Heimahlynningu sem
miðar að því að langt leiddir sjúklingar geti dvalist
heima.
Skrifstofa félagsins sinnir stjórnun, þjónar áðurnefnd-
um starfsdeildum og annast almenna afgreiðslu. Velta
Krabbameinsfélags Islands árið 1995 var um 200 millj-
ónir króna og eignir þess eru um 250 milljónir. Starfs-
menn eru alls um 80 í 60 stöðum. Helstu tekjustofnar
eru gjöld fyrir veitta þjónustu, tekjur af happdrætti og
sölu minningarkorta svo og ýmsar gjafir.
Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur tekið að sér
fræðslu um krabbamein, í nafni heildarsamtakanna, og
vinnur ekki síst að tóbaksvörnum, m.a. í grunnskólum
landsins. Þá gefur félagið út röð fræðslurita og annast
rekstur Happdrættis Krabbameinsfélagsins. Krabba-
meinsfélag Akureyrar og nágrennis, Krabbameinsfélag
Árnessýslu og Krabbameinsfélag Suðurnesja hafa ráðið
starfsmenn, einkum til fræðslustarfa, og einnig er
starfsmaður á Austurlandi.
Nánari upplýsingar um starf Krabbameinsfélagsins
má fá á skrifstofu félagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Afgreiðslutími er frá kl. 08.30 til kl. 16.30 og síminn er
562 1414. Sími Leitarstöðvarinnar er 562 1515.
íbúðirnar sem Krabbameinsfélagið og Rauði kross-
inn eiga að Rauðarárstíg 33 hafa komið að góðum
notum fyrir krabbameinssjúklinga af landsbyggðinni.
HEILBRIGÐISMÁL 2/1996 31