Heilbrigðismál - 01.06.1996, Blaðsíða 34

Heilbrigðismál - 01.06.1996, Blaðsíða 34
Tómas Jónasson Á sumum stöðum mættu allar konur sem boðaðar voru í krabbameinsskoðun segir Jón Þorgeir Hallgrímsson formaður Krabbameinsfélags Islands um upphaf krabbameins- leitar á landsbyggðinni Hann hefur verið formaður Krabbameinsfélags ís- lands í fjögur ár og var áður formaður Krabbameinsfé- lags Reykjavíkur í fjögur ár. Tengsl hans við félagið og starf þess ná þó enn lengra eða til ársins 1966 þegar hann, nýkominn úr sérfræðinámi í kvenlækningum í Svíþjóð, gerðist héraðslæknir á Hólmavík um skeið og sá um leit að leghálskrabbameini þar. Það var gert að höfðu samráði við Ölmu Þórarinsson yfirlækni Leitar- stöðvar Krabbameinsfélagsins, en stöðin hafði tekið til starfa tveim árum áður. Þetta var fyrsta skipulega hóp- skoðunin utan Reykjavíkur. Auk skoðunar á Hólmavík fór Jón Þorgeir með strandferðaskipi í Norðurfjörð og á Djúpuvík og skoðaði konur þar í heimahúsum meðan skipið beið. Jón Þorgeir hóf störf hjá Leitarstöð Krabbameinsfé- lagsins í ársbyrjun 1967, ásamt Guðmundi Jóhannes- syni, sem síðar varð yfirlæknir stöðvarinnar. I rúman áratug fór Jón Þorgeir oft í ferðir um landið á vegum Leitarstöðvarinnar. Sem dæmi má nefna að árin 1969 og 1970 skoðaði hann „nánast allt kvenfólk á svæðinu frá Eyjafirði og austur og suður um að Eyjafjöllum," eins og hann segir í stuttu viðtali við Heilbrigðismál, og kímir við. Jón Þorgeir Hallgrímsson minnist þessara ára með ánægju, þó aðstæður hafi ekki verið eins góðar og nú þekkist. „Þetta var áður en farið var að byggja allar heilsugæslustöðvarnar. A Húsavík skoðuðum við inn- an um uppstoppuð dýr í náttúrugripasafninu, á Vopnafirði í eldhúsinu í félagsheimilinu, á Norðfirði í sjómannaheimilinu, á Egilsstöðum í skóla og á Fá- skrúðsfirði í félagsheimilinu, í búningsherbergi bak við leiksviðið. Anægjulegast var hve þátttakan var mikil og almenn," segir Jón Þorgeir, „en fyrir kom að allar boðaðar konur í ákveðnum hreppum mættu til skoð- unar." Hjúkrunarfræðingur frá Leitarstöðinni var yfirleitt með í för og sýni voru send til Reykjavíkur svo fljótt sem unnt var. Ferðirnar voru farnar vor og haust og gat brugðið til beggja vona með veður og færð. „Stundum voru varðskip fengin til að flytja okkur á milli staða og ég man eftir að hafa verið ferjaður í land á þyrlu. Það var á Djúpavogi." Jón Þorgeir Hallgrímsson í ræðustól á aðalfundi Kabbameinsfélags Islands í vor. Hann hefur verið formaður félagsins í fjögur ár. Víða voru stofnuð krabbameinsfélög til að skipu- leggja leitina og aðstoða við hana. Síðan hafa þessi fé- lög beitt sér fyrir öðrum verkefnum, verið dugleg við fjáröflun og átt sinn þátt í að koma upp íbúðum í Reykjavík fyrir krabbameinssjúklinga af landsbyggð- inni meðan þeir eru í meðferð. Mörg félaganna greiða kostnað við dvöl í íbúðunum. „Starf þessara sjálfboða- liða er ómetanlegt og ekki síður starf stuðningshópa krabbameinssjúklinga," segir Jón Þorgeir. Fulltrúar aðildarfélaganna, svæðafélaga og stuðn- ingshópa, koma saman tvisvar á ári. Á haustin er for- mannafundur til að leggja línur fyrir vetrarstarfið en á vorin er haldinn aðalfundur Krabbameinsfélags ís- lands. Aðalfundurinn í vor var haldinn í nýinnréttuðu húsnæði á fjórðu hæð Skógarhlíðar 8, hússins sem þjóðin gaf félaginu og sjálfri sér í einni stærstu söfnun landsins árið 1982. „Nú er því takmarki náð að nýta húsið allt - og veitir ekki af, því að starfsemin er alltaf að aukast," segir Jón Þorgeir. „Um helmingur starfsins tengist krabbameinsleitinni. Síðan hið opinbera gerði við okkur samning um leitina, fyrir tæpum áratug, stendur hún nokkurn veginn undir sér. Hins vegar hef- ur annað starf félagsins, ekki síst rannsóknir, aukist svo hratt að okkur hefur ekki tekist að renna nógu styrkum stoðum undir það fjárhagslega. Það sem hefur bjargað okkur síðustu ár er að við höfum fengið hverja stór- gjöfina á fætur annarri, og er það ómetanlegt." „Allir sem vinna fyrir okkur og með okkur eru að vinna af hugsjón og eldmóði - án þess hefðum við ekki náð eins langt og raun ber vitni," segir Jón Þorgeir. „Við höfum verið að vinna að baráttu gegn krabba- meini í þágu þjóðarinnar og með miklum stuðningi hennar, eins og best hefur komið í ljós þegar við höfum efnt til þjóðarátaks gegn krabbameini. Þjóðin hefur treyst Krabbameinsfélaginu til að takast á við mörg og brýn viðfangsefni og vonandi fær félagið áfram umboð til að vinna að þessum góðu málum." -jr. 34 heilbrigðismAl 2/1996

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.