Heilbrigðismál - 01.06.1996, Blaðsíða 19

Heilbrigðismál - 01.06.1996, Blaðsíða 19
Heilbrigð manneskja er ekki gallalaus í sið- ferðilegu tilliti, heldur einfaldlega einstakl- ingur í góðu líkamlegu ástandi. Ég vil því líta á heilbrigði sem þröskuldarhugtak en ekki sem fyrirmyndarhugmynd. Ég sé ekk- ert því til fyrirstöðu að skilgreina sjúkdóm og heilbrigði sem líkamleg fyrirbrigði en leggja jafnframt mikla áherslu á þá and- legu og félagslegu þætti sem eru ófrávíkj- anlegur hluti bæði af sjúkdómssamheng- inu og bataleiðinni. Ég minni líka á að lif- andi mannslíkami er eining efnis og anda. Mönnum sést iðulega yfir þetta mikilvæga atriði vegna þess að þeir eru ýmist fastir í tvíhyggju sálar og líkama eða í vélfræði- legri einhyggju sem vanmetur sálarlíf mannsins. Ef menn vilja endilega reyna að skil- greina heilbrigði, held ég að vel megi dusta rykið af hugmyndum Platons um það efni. Þegar maður er heilbrigður, segir Platon, rækir hver líkamshluti vel sitt hlutverk og líkamsheildin gerir sitt gagn. Þetta heil- brigðishugtak vísar til góðs líkamsástands og eðlilegrar líffærastarfsemi. Hugmyndin um gott líkamsástand vísar síðan óhjá- kvæmilega til þess sem menn eru færir um að gera. „Sá sem getur elskað og unnið er heilbrigður", sagði Freud. Með þessu orða- lagi bendir Freud réttilega á að heilbrigði birtist ekki síður í samskiptahæfni okkar en starfshæfni. Þar með tengjast líka heilbrigði og mannkostir. Sá sem er ófær um að mynda góð tengsl við sjálfan sig og aðra er ekki heilbrigður. Hann þarf hins vegar hvorki að hafa vinnu né að vera ástfanginn til þess að teljast heilbrigður. Heilbrigð manneskja er fær um að axla ábyrgð, þótt Lykilhugtök hins siðferðilega lífs eru frelsi og ábyrgð sem fela í sér möguleika manna til að ráða sér sjálfir og bæta líf sitt. hún kunni af einhverjum ástæðum að gera það ekki. Þessar hugmyndir þeirra Platons og Freud um heilbrigði fela ekki í sér svör við því hvernig manneskjan á að lifa. Þetta kann að vera til marks um einn mikilvæg- an mun á heilbrigðum mönnum og heil- brigðum dýrum. Það er eflaust ekki heil- brigður skógarþröstur sem ekki gerir sér hreiður og það er vanheill íkorni sem ekki safnar hnetum, því að lífsmynstur þessara dýra og tegundareðli er svo njörvað niður af náttúrunni. Manneskjan hefur aftur á móti náð að slaka svo á böndum náttúr- unnar að svigrúm hefur skapast fyrir fjöl- breytta lífskosti sem heilbrigð manneskja getur nýtt sér, þótt þeir séu mismunandi lofsverðir frá siðferðilegu sjónarmiði. Þetta er einmitt meginástæðan fyrir því hversu varlega verður að beita heilbrigðis- hugtakinu. Þess eru fjölmörg dæmi í sög- unni að fólk hafi verið misrétti beitt í krafti hugmynda um heilbrigði og sjúkleika. Ég er ekki að halda því fram að dómar um heilbrigði séu ekki gildisdómar. Öðru nær: Hcilbrigði er gott og æskilegt ásigkomulag manneskjunnar til líkama og sálar. En slíkum gildisdómum, sem vísa til starfsemi mannslíkamans, á ekki að rugla saman við siðferðilega dóma um hegðun og lífs- máta. Dr. Vilhjálmur Árnason er dósent í heim- spcki við Háskóla íslands. HEILBRIGÐISMÁL 2/1996 19

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.