Heilbrigðismál - 01.06.1996, Qupperneq 11
Jónasson
Meðalaldur við greiningu
krabbameins hjá körlum
Eitlar
Skjaldkirtill Blaðra Blöðruháls-
Bris Nýru kirtill
Lungu Ristill Húð
35 ár 40 ár 45 ár 50 ár 55 ár 60 ár 65 ár 70 ár 75 ár
Meðalaldur við greiningu
krabbameins er nú 66 ár
Hefur hækkað meira hjá körlum en konum
Er krabbamein sjúkdómur aldr-
aðra? Já, en ekki eingöngu því að
fólk getur fengið krabbamein á öll-
um aldri þó líkurnar aukist eftir
því sem aldurinn hækkar. Af þeim
Islendingum sem greindust með
krabbamein á árunum 1991-95, en
það voru að meðaltali um 930 á ári,
voru innan við 2% undir tvítugu,
6% á aldrinum frá tvítugu til fer-
tugs, 21°/o frá fertugu til sextugs,
52% á aldrinum frá sextugu til átt-
ræðs og 19% voru áttræðir eða
eldri. Fleiri konur en karlar fá
krabbamein á aldrinum frá 25 ára
til 64 ára en síðan eiga karlar vinn-
inginn.
Úr gögnum Krabbameinsskrár
Krabbameinsfélags Islands má sjá
að meðalaldur karla við greiningu
krabbameins er tæp 69 ár en meðal-
aldur kvenna 64 ár. Síðasta aldar-
fjórðung hefur meðalaldurinn
hækkað um tæp fjögur ár hjá körl-
um en rúmt ár hjá konum. Við
þann samanburð er ekki tekið tillit
til breytinga á aldursskiptingu
þjóðarinnar.
Blöðnihálskirtilskrnbbameiii er al-
gengasta krabbamein íslenskra
karla og er meðalaldur við grein-
ingu þess 74 ár. Það er mjög fátítt
fyrir fimmtugt, tíðnin eykst hratt
fram undir áttrætt en stendur síðan
nánast í stað. Meiri hækkun hjá
körlum en konum á meðalaldri við
greiningu krabbameins í heild má
skýra að einhverju leyti með mikilli
aukningu á blöðruhálskirtils-
krabbameini undanfarna áratugi.
Brjóstakrabbamein, sem er algeng-
asta krabbamein kvenna, greinist
fyrst um þrítugt, eykst til fimmtugs
en tíðnin breytist lítið eftir það.
Meðalaldur við greiningu er 61 ár.
Lungnakrabbamein, sem nú er orð-
ið næst algengasta krabbameinið
hjá báðum kynjum, finnst að jafn-
aði ekki fyrr en liðið er á fertugs-
aldur en tíðnin nær hámarki á átt-
ræðisaldri. Meðalaldur karla sem fá
þennan sjúkdóm er 68 ár en kon-
urnar eru ári yngri.
Leghálskrabbamein greinist að
meðaltali við 50 ára aldur. Er það
ótvíræður kostur að geta leitað
skipulega að krabbameini sem
leggst á svo ungar konur.
Eistakrabbamein greinist í ungum
körlum, flestir þeirra eru á aldrin-
um frá tvítugu til fimmtugs og
meðalaldurinn er aðeins 36 ár. A
móti kemur að batahorfur eru
orðnar mjög góðar og nær allir
læknast.
Skjaldkirtilskrabbamein virðist ekki
herja á bæði kyn á sama aldri. Kon-
urnar eru að meðaltali 55 ára þegar
sjúkdómurinn greinist en karlarnir
69 ára.
Sortuæxli í húð hjá konum grein-
ast að meðaltali við 53 ára aldur en
önnur húðkrabbamein heilum tveim
áratugum síðar, við 73 ára aldur.
Hjá körlum er munurinn minni eða
fimmtán ár.
Meðfylgjandi skýringarmyndir
sýna meðalaldur við greiningu
fimmtán algengustu krabbameina
hjá körlum og konum. Af öðrum
meinum má nefna að meðalaldur
við greiningu Hodgkinssjúkdóms hjá
körlum er aðeins 28 ár og 42 ár hjá
konum. -jr.
Meðalaldur við greiningu krabbameins hjá konum s Legháls Skjal ortuæxl dkirtil Eggja- stokkar Heili .egbolur Brjóst Eitlar nd Lur agörn gu Nýru Bri Hú Ris s 5 till Vlagi
35 ár 40 ár 45 ár 50 ár 55 ár 60 ár 65 ár 70 ár 75 ár
HEILBRIGÐISMÁL 2/1996 11