Heilbrigðismál - 01.06.1996, Síða 14

Heilbrigðismál - 01.06.1996, Síða 14
Jóhannes Long áhrif lækna sem heilbrigðisstéttar eru mjög mikil hvað varðar al- menna heilbrigðisráðgjöf til ein- staklinga, fjölskyldna og samfélags- ins í heild. Mikið er hlustað á lækna og eftir því tekið sem þeir segja og gera. Þekkt er að viðtal læknis og sjúkl- ings er áhrifamesta einstaka með- ferðin til þess að fá fólk til að hætta reykingum. Læknar eða aðrir heilbrigðis- starfsmenn sem reykja senda um- hverfi sínu skilaboð sem geta grafið undan og eyðilagt varnarstarf fjölda annarra. Því miður tíðkast þetta enn, þrátt fyrir boð og bönn. Margar rannsóknir hafa sýnt að sjúklingur sem nýtur aðstoðar læknis við að hætta að reykja, jafn- vel með tiltölulega einfaldri ráð- gjöf, er líklegri til þess að ná ár- angri heldur en sá sem ekki nýtur slíkrar aðstoðar. Heilsugæslulæknar, hjúkrunar- fræðingar og annað heilbrigðis- starfsfólk á að nota þau færi sem gefast til þess að ráðleggja ungu fólki að byrja ekki reykingar og þeim eldri að hætta reykingum og veita þeim stuðning til þessa. Lýsingar á hættu af óbeinum reykingum eru oft áhrifamikil skilaboð til reykingamanna sem eiga börn. Um leið getur læknir skýrt fyrir foreldri að fátt dragi meira úr líkum þess að barn hans verði reykingamaður en að foreldr- ið hætti sjálft. Afstaða foreldra til reykinga skiptir verulega miklu máli. Þegar síðan kemur að ungl- ingum eða ungu fólki er oft áhrifa- ríkt að ræða um skaðsemi á húð, hæfileika til íþrótta, kostnað við reykingar o.fl. Læknar geta notað viðtal við hvern einasta einstakling eldri en tíu ára, til þess að koma því á framfæri að tóbaksneysla er fíkn, heilsuspillandi og fáránleg í alla staði. í samfélaginu hafa læknar einnig mikil áhrif og hlutverk þeirra er mikilvægt. Þeirra er að hafa áhrif á verslunareigendur, sveitarstjórnir og löggjafa til þess að vinna fyrir- byggjandi þáttum fylgi í samfélag- inu. Helmingur deyr I raun þarf ekki meiri rannsóknir á skaðsemi reykinga, við vitum nóg! Við vitum um þann mikla og margþætta skaða sem tóbaksneysla veldur. Reykingar eru orsakaþáttur og áhættuþáttur sem fyrir löngu er öllum kunnur sem vilja vita. Vægi hans er mikið og jafnast á við sam- anlagða hættu af hækkun á blóð- fitu, hækkuðum blóðþrýstingi og offitu. Til fyrirmyndar er að sjúkrahúsin eru orðin reyklaus svo og allar heilsugæslustöðvar. En betur má ef duga skal. Fáir vita betur en læknar hvað tóbaksneysla gerir fólki. Þeir hafa þekkingu á sársauka, örkuml- um og ótímabærum dauðsföllum sem að minnsta kosti helmingur reykingamanna lendir í. Það er þó mikilvægast af öllu að þeir eru í stöðu eða hafa hlutverk sem getur skipt máli. Þá fyrst þegar læknar og samtök þeirra, sem og annað heilbrigðis- starfsfólk, vinna af einurð að því að draga úr tóbaksnotkun verður því trúað að samtök þessara stétta hafi áhuga á öðru en eigin hagsmunum. Heilbrigðisstarfsfólk er með þekkinguna á skaðsemi tóbaks, kann ýmsar góðar aðferðir til varn- ar, ér í góðri aðstöðu til að nota þekkinguna en beitir sér of lítið. Þekking þessi hefur ekki enn náð að verða hagsmunaöflum markað- arins yfirsterkari. Svo virðist sem frekar slátri menn breskum naut- gripum í milljónatali en að taka af skynsemi á sannarlega miklu hættulegri orsakavaldi heilsutjóns og dauða. Ef tóbak dræpi húsdýr væri löngu búið að útrýma því. Hins vegar virðist í lagi að það felli hús- bændurna. Sveinn Magnússon læknir er sér- fræðingur í heimilislækningum. Hann starfar á Heilsugæslunni í Garðabæ og cr héraðslæknir Reykjaness. Áður hafa birst greinar í Heilbrigðismálum eftir Svein um reykingar kvenna (1/1986) og um bætt heilsufar barna og unglinga (4/1992). Síðustu ár hafa að meðaltali greinst 105 ný tilfelli á ári af lungna- krabbameini og 96 hafa dáið úr sjúkdómnum. Þetta er um tvöfalt það sem var fyrir fimmtán árum og fimmföldun frá því fyrir þrjátíu árum. Skipting milli karla og kvenna er orðin nokkuð jöfn en áður voru karlar fleiri en konur. Helmingur þeirra sem deyja úr lungnakrabbameini er sjötíu ára eða yngri og þeir yngstu á fertugsaldri. Allt fram undir sjötugt deyja fleiri konur en karlar, en dánartíðni kvenna úr lungnakrabba-1 meini er óvíða hærri en hér á landi. Aðeins um tíundi hver sjúklingur sem greinist með lungna- krabbamein getur vænst þess að lifa í fimm ár eða lengur. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að um 90% af krabbameini í lung- rekja til reykinga. Samkvæmt því má áætla að á árunum til 1994 hafi um 1000 íslendingar látist úr lungnakrabba- meini af völdum reykinga. -jr. Nær hundrað dauðsföll á ári úr lungnakrabbameini 14 HEILBRIGÐISMÁL 2/1996

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.