Heilbrigðismál - 01.03.1997, Blaðsíða 5
Sigurður Stefán Jónsson - Tómas Jónasson
Til verndar
umhverfinu
Umhverfisráðherra hef-
ur sett reglugerð um
álagningu spilliefna-
gjalds, sem kveður á um
að gjald skuli lagt á alla
blýsýrurafgeyma til að
standa straum af kostn-
aði við móttöku og förg-
un þeirra. Rafgeymar eru
fyrsti vöruflokkurinn
sem spilliefnagjald er
lagt á skv. lögum sem
samþykkt voru á Alþingi
í fyrra, en einnig hefur
verið lagt spilliefnagjald
á ljósmyndavökva. Til
stendur að leggja gjald á
ýmsa aðra vöruflokka í
áföngum á næstu misser-
um.
Til spilliefna telst hvers
kyns úrgangur sem tal-
inn er hafa skaðleg eða
óæskileg áhrif á um-
hverfi og jafnvel á heilsu
fólks. Margs kyns olíu-
vörur, málning, lífræn
leysiefni, rafhlöður, ljós-
myndavörur og ýmsar
aðrar efnavörur geta orð-
ið að spilliefnum. Mark-
mið laga um spilliefna-
gjald var að skapa skil-
yrði fyrir söfnun og
viðunandi eyðingu eða
endurnýtingu þessara
efna.
Grænn lífseðill
til að bæta
heilsu og líðan
Heilbrigðisráðuneytið
og íþróttasamband Is-
lands hafa gert samning
til tveggja ára um verk-
efni sem nefnist „Grænn
lífseðill" og miðar að því
að bæta heilbrigði og líð-
an almennings. Fólk er
hvatt til að hreyfa sig
reglulega, neyta hollrar
fæðu og hafna hvers
konar fíkniefnum. Fram-
kvæmd verkefnisins er í
höndum íþrótta fyrir alla
og Heilsueflingar.
Svipmynd frá upphitun
í Heilsuhlaupi Krabba-
meinsfélagsins.
Sextíu hlaup
á einu ári
Sextíu almennings-
hlaup eru í boði frá mars
og fram í desember, sam-
kvæmt skrá Frjálsíþrótta-
sambands íslands. Flest
þeirra voru í júní, eða átj-
án, en einnig voru mörg
í maí og júlí. Kvenna-
hlaup ÍSI var fjölmenn-
ast, eins og áður, en
mörgum finnst Reykja-
víkurmaraþonið í ágúst
vera hápunkturinn.
Vegalengdir eru frá
tveggja kílómetra skokki
upp í 42,2 kílómetra
maraþon. Lengst var þó
hlaupið í lok júlí þegar
lagt var í Laugaveginn,
frá Landmannalaugum
og niður í Þórsmörk.
Þetta eru um 55 kíló-
metrar.
í áttina
Mjólkursamsalan hefur
sætt ámæli fyrir að selja
Engjaþykkni sem er með
6-8% fitu, en það er
helmingi meira en í
venjulegri jógúrt og fjór-
um sinnum meira en í
léttjógúrt.
Nú hefur fyrirtækið
sett á markað nýja teg-
und, Létt engjaþykkni,
þar sem fituhlutfallið er
aðeins 1,9%. Eitt sinn
var sagt að batnandi
manni væri best að lifa.
Ætli sama máli gegni
ekki um fyrirtæki sem
laga sig að kröfum neyt-
enda um heilnæmari
vöru?
Niðurskurður
hefur ekki bitnað
á fötluðum
„Málefnum fatlaðra
hefur verið sinnt mun
betur en öðrum mála-
flokkum á undanförnum
árum og niðurskurður í
ríkisfjármálum hefur ekki
bitnað á fötluðum. Þvert
á móti. Og því ber að
fagna," segir Friðrik Sop-
husson fjármálaráðherra í
grein í tímaritinu Þroska-
hjálp. Hann segir að út-
gjöld til þessa málaflokks
hafi aukist um 21% frá
1990 en á sama tíma hafi
útgjöld til heilbrigðis- og
tryggingamála aukist um
10% og útgjöld til at-
vinnumála, þar á meðal
landbúnaðar, hafi lækkað
um 25%.
„Takist að ná hallalaus-
um fjárlögum og draga
úr vaxtagreiðslum ríkis-
sjóðs mun það koma öll-
um landsmönnum til
góða, einnig fötluðum,"
segir Friðrik.
Útgjöld ríkissjóðs til
fatlaðra hafa aukist
meira en til margra ann-
arra málaflokka.
HEILBRIGÐISMÁL 1/1997 5