Heilbrigðismál - 01.03.1997, Síða 7

Heilbrigðismál - 01.03.1997, Síða 7
 Létt fæða og lægri þrýstingur Með því að neyta fitu- lítillar fæðu, grænmetis, korns og ávaxta, er hægt að lækka blóðþrýsting. Ef hlutfall fæðuorku úr fitu er minnkað úr 37% í 27% lækkar þrýstingur- inn um 5-10 mm Hg á nokkrum vikum, sam- kvæmt niðurstöðum bandarískrar rannsóknar. Þetta er svipaður árangur og næst með algengum háþrýstingslyfjum, að sögn. Harvnrd Health Letter, febrúar 1997. Hjálmarnir gera gagn Notkun reiðhjóla- hjálma getur dregið úr hættu á alvarlegum af- leiðingum slysa um 65- 80%. Þetta sýna niður- stöður rannsóknar sem gerð var á slysadeild Washington-háskóla í Hjálmamir veita börn- um vörn hvort sem þau eru á hjóli eða hjóla- I skautum. Grænmeti og ávextir bæta blóðþrýstinginn. Seattle í Bandaríkjunum. Hvatt er til aukinnar fræðslu um gildi hjálma og að notkun þeirra verði lögleidd. Þá er mælt með gerð reiðhjóla- stíga til að skilja umferð hjólreiðamanna frá bíla- umferð. American Medical Nezvs, janúar 1997. Bananar og kartöflur Kalíum getur hjálpað til við að hjartslátturinn sé reglulegur og að halda blóðþrýstingi í skefjum. Mikið af þessu nauð- synlega efni er í ban- önum og álíka mikið er í kartöflum. Ráðlagðir dagskammtar eru 2000 milligrömm, en það fæst úr 500 grömmum af banönum eða kartöfl- um. Health, apríl 1997. Grátt ofan á svart Ef lungnakrabbamein, lungnaþemba og hjarta- sjúkdómar nægja ekki til að sannfæra reykinga- menn um að hætta að reykja má bæta við enn einni staðreynd: Reyk- ingamenn eru fjórum sinnum líklegri til að verða gráhærðir heldur en jafnaldrar þeirra sem ekki reykja. Health, apríl 1997. Reykur frá öðrum er hættulegur fyrir hjartað Konur sem eru mikið í reykmettuðu lofti á vinnustað eða heimili, en reykja ekki sjálfar, tvö- falda hættuna á að fá hjartaáfall, samanborið við þær sem njóta heil- næmara andrúmslofts. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem náði til 32 þúsund bandarískra hjúkrunarkvenna. Þær konur sem þurfa af og til að þola reykmengun eru einnig í aukinni hættu. Áður hefur verið sýnt fram á tengsl lungna- krabbameins og óbeinna reykinga en þessi rann- sókn er talin valda straumhvörfum varðandi tengsl hjartasjúkdóma og óbeinna reykinga. Ef nið- urstöður hennar eru lagðar til grundvallar má áætla að 30-60 þúsund Bandaríkjamenn látist á hverju ári vegna tóbaks- reyks frá öðrum. Pathfinder, maí 1997. Alls staðar til ama. Sólarvörn fyrir börn Nokkuð vel hefur tek- ist að fræða bandarískar fjölskyldur um þá hættu sem börnum stafar af því að vera í mikilli sól. Ný- leg könnun sýndi að helmingur ungra barna á sólbaðsstöðum í New Hampshire var vel var- inn, fjórðungur var var- inn að nokkru leyti en fjórðungur óvarinn. Miklivægt er talið að hlífa líkamanum sem mest við sólargeislum, ekki síst andliti. Ástralir hafa góða reynslu af því að skapa tísku sem kem- ur að gagni, til dæmis notkun barðastórra hatta. Einnig skiptir máli að vera í þægilegum fötum, bolum og helst buxum með hálfsíðum skálmum - að ekki sé minnst á sólarolíu. Pathfinder, maí 1997. Netlifnaður Þeir sem sitja fastast við tölvuna vegna Inter- netsins hafa gjarnan eitt- hvað við hendina til að setja upp í sig meðan flakkað er um veraldar- vefinn. Oftast er um að ræða poppkorn, salthnet- ur og kartöfluflögur. Þetta er síður en svo hollustufæði en að sjálf- sögðu má fá leiðbeining- ar á netinu um hvað sé hollt og óhollt! Psychology Today, maí-júní 1997. HEILBRIGÐISMÁL 1/1997 7

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.